Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Agnar Már Másson og Eiður Þór Árnason skrifa 13. júlí 2026 20:19 Siggi stormur hvetur fólk til að ferðast um landið sitt. Sýn Útlit er fyrir rigningarveður á höfuðborgarsvæðinu út vikuna en sól og blíðu á Austurlandi. Nokkuð grátt hefur verið yfir suðvesturhorninu og vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu. Þá hefur nokkur rigning verið á vesturhluta landsins en talsvert þurrara fyrir austan. Veðurfræðingur segir allt stefna í að besta veðrið verði á Suðaustur- og Austurlandi um helgina.
Á vesturhluta landsins hefur hitastig verið um og upp úr tíu gráðum en nærri tuttugu gráðum sums staðar á Austurlandi. Útlit er fyrir að svipað veður haldist út vikuna en það dragi eitthvað úr úrkomu víðast hvar. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi stormur, segir þetta eiga að hvetja íbúa á suðvesturhorninu til að skoða landið sitt og fara út fyrir höfuðborgarsvæðið. Hiti fór yfir 27 gráður í gær „Í dag fór hitinn í 26,2 gráður á Reyðarfirði. Það var hæsti hitinn í dag og 27,4 í gær á Seyðisfirði. Þessir hitar eru áfram inni út vikuna en það sem veldur þessu er hæðarsvæði við suðausturströnd landsins og svo er lægðardrag á Grænlandssundi. Hæðin heldur við á móti og lægðirnar komast ekki hina venjulegu leið sem við myndum óska að þær færu, þannig að þær eru fyrir vestan land og við fáum skaflinn af rigningunni,“ sagði Siggi stormur í kvöldfréttum Sýnar um stöðuna á suðvesturhorninu. „Það sem smátt og smátt er að gerast núna er að það verður vindasamt á landinu fram á miðvikudag. Þá fara hins vegar svolítið spennandi tímar að renna upp í veðurfræðinni því þá er hæðin komin með völdin og þá gæti orðið bjart fyrir mjög víða á landinu og sérstaklega á föstudag og jafnvel laugardaginn. Þar eru spár ekki alveg sammála því hvað verður úr.“ Bið eftir góða veðrinu í Reykjavík Sigurður mælir með því að fólk sem vill fara í útilegu um helgina fari á Suðaustur- og Austurland. „Kirkjubæjarklaustur er að koma ágætlega inn á kortið, sérstaklega upp úr fimmtudeginum og þegar líður á sunnudaginn. Til dæmis ef menn verða frá fimmtudegi til sunnudags, þá er sunnudagurinn einna bestur á Suðausturlandi ef spár rætast. Ég myndi segja Suðaustur- og Austurland, þangað eiga menn að fara og þar er mesti hitinn og þar er mesta blíðan. Þannig að ég ráðlegg öllum að drífa sig og skoða landið sitt og nota góða veðrið þegar það gefst. Og það kemur gott veður í Reykjavík, það þarf bara að bíða aðeins eftir því.“
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira