Neytendur

Vekja at­hygli á inn­köllun leik­fangs

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ekki liggur fyrir hvort að leikfangið fáist hér á landi.
Ekki liggur fyrir hvort að leikfangið fáist hér á landi. Vöruvaktin

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HMS á Vöruvaktinni. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum.

„Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni,“ segir í tilkynningunni en bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni. Það getur valdið skemmdum á erfðaefni. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi auk sviðatilfinningar í meltingarvegi og ertingu í húð.

Samsons Cash and Carry Ltd. er dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi en á henni er hvorki vörunúmer né lotunúmer.

Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi en hægt er að festa kaup á henni í vefverslunum. Leikfangið virðist samt sem áður vinsælt og hefur vakið umræðu á Facebook-hópnum Mæðratips.

„Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust,“ segir í tilkynningunni.

„Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×