Djokovic ætlar að sækja annan risatitil Andri Broddason skrifar 10. júlí 2026 08:30 Jannik Sinner og Novak Djokovic mætast ú undanúrslitum Wimbledon-risamótsins í tennis. Samsett/Getty Í dag fara fram undanúrslit karla á Wimbledon-risamótinu í tennis. Þar fáum við sannkallaðan risaleik þar sem Jannik Sinner og Novak Djokovic mætast.
Jannik Sinner getur varið Wimbledon-titilinn sinn með sigri á mótinu en hann mun mæta serbnesku goðsögninni Novak Djokovic. Aldur Djokovic er farinn að setja strik í reikninginn en hann er orðinn 39 ára. Þrátt fyrir það hefur hann spilað frábærlega á Wimbledon í ár. Djokovic endaði í maraþonleik í 8-manna úrslitum þar sem hann mætti Kanadamanninum Felix Auger-Aliassime. Þetta var lengsti leikur sem Djokovic hefur spilað á Wimbledon-mótinu en þetta er í tuttugasta skipti sem hann tekur þátt. Með sigri á mótinu getur hann bætt við 25. risatitli sínum sem myndi innsigla stöðu hans sem sigursælasti tennisleikmaður allra tíma. Jannik Sinner sem er efstur á heimslistanum í tennis og því má Djokovic búast við erfiðum leik. Sinner átti jafna viðureign í fyrsta leik en síðan þá hefur hann ekki tapað setti og verið í toppformi. Síðast þegar þessir leikmenn mættust var það á Opna ástralska risamótinu, einnig í undanúrslitum. Þar náði Djokovic að vinna og komst í úrslitaleikinn. Sinner vill því óðum bæta upp fyrir það tap en af ellefu viðureignum sem þeir hafa keppt í hvor á móti öðrum hefur Sinner unnið sex þeirra. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast heimamaðurinn Arthur Fery og Þjóðverjinn Alexander Zverev. Fery er óvænt kominn í undanúrslit og Zverev getur unnið sitt annað risamót í röð eftir að hafa unnið Opna franska risamótið fyrr í sumar.
Tennis Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Fleiri fréttir Meistaraliðið selt fyrir metverð Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádí-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Náði að plata Óskar Örn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Sjá meira