Robinson hafi lýst eftirsjá Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júlí 2026 21:50 Tyler Robinson í dómsal fyrr í mánuðinum. AP/Bethany Baker, Salt Lake Tribune Fyrrverandi herbergisfélagi Tyler Robinson, sem sakaður er um að hafa myrt Charlie Kirk, sagði í dag að hann hefði lýst eftirsjá daginn eftir morðið. Robinson hefði ætlað að gefa sig fram við lögreglu.
Fyrirtaka í dómsmáli gegn Robinson hófst í byrjun vikunnar og var í dag spiluð myndbandsupptaka af yfirheyrslu yfir Lance Twiggs, fyrrverandi herbergisfélaga Robinson. Markmið saksóknara var að sýna fram á að þeir hefðu næg sönnunargögn gegn Robinson til að réttlæta réttarhöld. Saksóknararnir fara fram á dauðarefsingu. Kirk, sem var hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Bandaríkjaforseta, var skotinn til bana á viðburði í háskóla í Utah í september 2025. Tveimur dögum síðar var Robinson handtekinn grunaður um morðið. Twiggs var yfirheyrður af lögreglu þann 20. apríl en hann samþykkti að fara í yfirheyrslu hjá saksóknurum og lögreglu í stað þess að bera vitni við fyrirtökuna. Einnig fékk hann sakaruppgjöf fyrir samvinnuna. Í yfirheyrslunni var hann spurður út í textaskilaboð sem hann og Robinson sendu til hvors annars nokkrum klukkustundum eftir morðið. Þar á Robinson að hafa játað fyrir Twiggs að hafa skotið Kirk. „Ég fékk nóg af hatri hans. Sumt hatur er ekki hægt að semja um,“ skrifaði Robinson þegar Twiggs spurði hann af hverju hann skaut Kirk. Krafðist þess að allt yrði sýnt „Ég spurði hann bara í eigin persónu hvort það sem hann sagði kvöldið áður væri satt og hann sagði já. Hann byrjaði að gráta smá og sagðist óska þess að hann hefði ekki gert það,“ sagði Twiggs í yfirheyrslunni. Hluti yfirheyrslunnar var ekki spilaður í réttarsalnum samkvæmt skipun dómarans eftir að lögmaður Robinson sagði að saksóknarar myndu túlka þann hluta sem játningar. Því væri réttur sakborningsins til réttlátrar málsmeðferðar í hættu. Lögmaður Eriku Kirk, ekkju Charlie Kirk, krafðist þess að yfirheyrslan yrði spiluð í heild sinni og að öll sönnunargögnin yrðu sýnd. „Kirk-fjölskyldan hefur beðið í tíu mánuði eftir þessari meðferð. Hún á rétt á að heyra sönnunargögnin,“ sagði lögmaðurinn samkvæmt Reuters.
Morðið á Charlie Kirk Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira