Samstarf

Epli opnar nýja og glæsi­lega verslun í Smára­lind

Epli
Við hönnun nýrrar verslunar Epli var sérstök áhersla lögð á að skapa bjart, opið og aðlaðandi umhverfi.
Við hönnun nýrrar verslunar Epli var sérstök áhersla lögð á að skapa bjart, opið og aðlaðandi umhverfi.

Epli hefur flutt verslun sína í Smáralind í nýtt og glæsilegt rými við hlið nýju Mathallarinnar.

Þar er lögð er rík áhersla á betri upplifun viðskiptavina, aukið aðgengi að vörum og hinn einkennandi Apple-stíl.

Við hönnun verslunarinnar var sérstök áhersla lögð á að skapa bjart, opið og aðlaðandi umhverfi sem endurspeglar Apple-verslanir víða um heim. Rýmið gerir viðskiptavinum kleift að skoða vörur á þægilegan hátt, prófa nýjustu tækin og fá persónulega ráðgjöf frá starfsfólki Epli.

Skipulag verslunarinnar hefur jafnframt verið endurbætt þannig að aðgengi að vöruflokkum er betra en áður. Hvort sem viðskiptavinir leita að nýjum Mac, iPhone, iPad, Apple Watch, AirPods eða fjölbreyttum fylgihlutum er nú auðveldara en áður að finna réttu vöruna.

„Við vildum hanna verslun sem endurspeglar þá upplifun sem Apple stendur fyrir – bjart, einfalt og aðgengilegt umhverfi þar sem tækin fá að njóta sín,“ segir Örn Barkarson, sölustjóri Epli.

Nýja verslunin gerir okkur kleift að veita enn betri þjónustu og skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini okkar.

Með flutningnum styrkir Epli enn frekar þjónustu sína á höfuðborgarsvæðinu og býður viðskiptavini velkomna í nýtt og glæsilegt verslunarrými þar sem þeir geta kynnt sér nýjustu vörur Apple, fengið faglega ráðgjöf og upplifað það sem Apple hefur upp á að bjóða í vinalegu umhverfi. Nýja verslun Epli í Smáralind er nú opin og starfsfólk Epli tekur á móti viðskiptavinum alla daga samkvæmt opnunartíma Smáralindar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×