Kristinn V. Jóhannsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 8. júlí 2026 11:11 Kristinn V. Jóhannsson í níræðisafmæli sínu á síðasta ári. Jóhann G. Kristinsson Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi stjórnarformaður Síldarvinnslunnar til nítján ára, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést 3. júlí síðastliðinn á heimili sínu í Reykjavík.
Greint er frá andláti Kristins á vef Síldarvinnslunnar. Hann átti sæti í stjórn Síldarvinnslunnar á árunum 1983 til 2005 og var formaður stjórnarinnar á árunum 1984 til 2003. Þá átti hann sæti í bæjarstjórn Neskaupstaðar á árunum 1966 til 1990. Fram kemur að hann hafi sinnt stjórnarstörfum í Síldarvinnslunni af einstakri samviskusemi og dugnaði og átt farsælt og gott samstarf við aðra stjórnarmenn og stjórnendur fyrirtækisins. „Kristinn fæddist í Neskaupstað þann 28. ágúst árið 1934 og ólst þar upp. Hann hélt til náms í menntaskóla og háskóla en á námsárunum lagði hann stund á ýmis sumarstörf og þá helst sjómennsku. Þegar náminu lauk fluttist hann fljótlega á sínar gömlu heimaslóðir ásamt Báru Jóhannsdóttur eiginkonu sinni. Eftir að heim var komið sinnti hann kennslustörfum við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað en árið 1971 var hann ráðinn skólastjóri Iðnskóla Austurlands og því starfi gegndi hann í áratug. Árið 1981 tók Kristinn við starfi framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og var félagið starfsvettvangur hans allt til ársins 2005. Stjórn og framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar árið 1998. Aftari röð frá vinstri: Þórður Þórðarson, Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri og Halldór Þorsteinsson. Fremri röð frá vinstri: Kristinn Ívarsson, Kristinn V. Jóhannsson og Guðmundur Bjarnason.Síldarvinnslan Auk áðurnefndra starfa sinnti Kristinn félagsmálum í Neskaupstað og má meðal annars nefna að hann var formaður Íþróttafélagsins Þróttar á árunum 1964 – 1966. Ferill hans á sviði bæjarmála er eftirtektarverður. Kristinn átti sæti í bæjarstjórn Neskaupstaðar á árunum 1966 – 1990. Hann var varaforseti bæjarstjórnarinnar á árunum 1966 – 1974 og síðan forseti á árunum 1974 – 1990. Naut Kristinn mikils trausts sem sveitarstjórnarmaður og voru honum falin margvísleg verkefni á vettvangi sveitarsjórnarmála. Bára, eiginkona Kristins, lést árið 2006 en nokkrum árum síðar hóf hann sambúð með Katrínu Oddsteinsdóttur frá Stykkishólmi. Þau Kristinn og Katrín dvöldu ýmist í Neskaupstað eða Stykkishólmi. Katrín lést árið 2024 og eftir það bjó Kristinn í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni. Útför fer fram frá Bústaðakirkju í Reykjavík fimmtudaginn 16. júlí klukkan15. Kveðjuathöfn og greftrun fer fram mánudaginn 27. júlí frá Norðfjarðarkirkju klukkan 13.
Síldarvinnslan Andlát Fjarðabyggð Sjávarútvegur Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Sjá meira