Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2026 16:45 Sigurpáll Sören Ingólfsson kastar sér á eftir boltanum eftir skot Arons Birkis Stefánssonar. sýn sport Sigurpáll Sören Ingólfsson fékk á sig þrjú mörk á fyrstu fjórtán mínútunum þegar KR sótti Þór heim í Bestu deild karla í síðustu viku. Kollegi hans í marki Akureyrarliðsins, Aron Birkir Stefánsson, skoraði meðal annars með skoti af gríðarlöngu færi. Bjarni Guðjónsson tók til varna fyrir Sigurpál í Stúkunni.
Fyrir leikinn gegn Þór á fimmtudaginn var skipti Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, um markvörð. Sigurpáll kom inn í byrjunarliðið í stað Halldórs Snæs Georgssonar. Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þórsurum yfir strax á 2. mínútu og átta mínútum síðar skoraði Einar Freyr Halldórsson beint úr hornspyrnu. Á 14. mínútu skoraði Aron Birkir svo þriðja mark Þórs og varð þar með aðeins fjórði markvörðurinn til að skora í sögu efstu deildar á Íslandi. Farið var yfir þessar erfiðu byrjun á leiknum fyrir Sigurpál og KR-inga í Stúkunni í gær. „En er þetta Sigurpáli að kenna, þetta mark?“ sagði Bjarni um fyrsta mark Þórs. Klippa: Stúkan - umræða um Sigurpál Sören og mörk Þórs „Finnur Tómas [Pálmason] er bara með lélega sendingu. Sigurpáll er að gera það sem markmenn KR eiga að gera þarna, koma út og vera þátttakandi í leiknum og Finnur setur hann bara framhjá honum. Er hægt að hengja þetta á hann? Það er erfitt að setja þetta á Sigurpál. Finnur sér hann alveg þarna. Á hann að standa aftar? Jú, kannski.“ Stærri markvörður hefði kannski náð í boltann Bjarni vildi þó meina að Sigurpáll hefði átt að gera betur í öðru marki Þórs sem kom beint úr hornspyrnu. „Hér er þetta bara erfitt og hugsanlega hefði stærri markvörður náð í boltann. En Þórsararnir gera þetta líka vel. Það er þarna maður sem stendur fyrir aftan hann, passar sig hundrað prósent að brjóta á honum. Hann stendur bara stöðuna sína og þannig að Sigurpáll getur ekki bakkað og átt við fyrirgjöfina. Hornspyrnan var frábær, algjörlega frábær,“ sagði Bjarni. Sturluð spyrna Baldur Sigurðsson tók svo orðið. „Ég ætla ekkert að vaða í Sigurpál. En þetta eru samt þannig mörk. Með fyrsta markið er ég sammála. En annað og þriðja markið, þrátt fyrir að spyrnan hans Arons sé gjörsamlega sturluð þarna fyrir aftan mig og boltinn endar í netinu verðurðu samt að setja þá kröfu á markmanninn að hann lesi þessar aðstæður,“ sagði Baldur. Strákarnir bentu á að Þórsarar hefðu reynt að skora beint úr aukaspyrnunni á eigin vallarhelmingi, rétt áður en Aroni Birki tókst það. „Ef það er ekki ljóst nú þegar, alveg sama hver er í markinu, hann á að standa hátt á vellinum. Það skiptir engu máli hver stendur í markinu og þeir skilja þetta. Það er aftur þarna, held ég, og aftur ætla ég að taka upp markmannshanskann fyrir Sigurpál, að hann á að standa hátt og það á frekar að gefa þennan möguleika heldur en hinn möguleikann,“ sagði Bjarni og benti á að Sigurpáll hefði ekki einu sinni verið það framarlega í markinu þegar Aron Birkir skoraði. Á að taka þetta Baldur hafði ekki alveg jafn mikla samúð með Sigurpáli og Bjarni. „Það er það sem ég er að segja. Við getum alveg tínt til eitthvað, já, maður sem var að hindra hann og eitthvað svona. En markmennirnir eiga samt að taka þetta. Markmaður sem fær boltann yfir sig á sjötíu metrum á að taka það. Markmaður sem fær á sig mark sem kemur beint úr hornspyrnu á þá bara að ýta þessum manni í burtu. Það er það sem ég er að segja,“ sagði Baldur en þeir Bjarni voru sammála um hversu glæsilegt mark Arons Birkis var. Sigurpáll var kallaður til baka úr láni frá Ægi þegar Arnar Freyr Ólafsson meiddist í 3-2 sigri KR á Keflavík í 1. umferð Bestu deildarinnar í vor. Halldór hefur staðið vaktina í marki KR í sumar, allt þar til fyrir norðan í síðustu viku. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Þór Akureyri KR Stúkan Tengdar fréttir Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, misstu bæði niður forystu í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild karla. KR náði í stig eftir að Þór hafði komist 3-0 yfir í Þorpinu með ótrúlegum mörkum og Víkingur vann KA með dramatísku sigurmarki af vítapunktinum. 3. júlí 2026 12:01 Átti Amin að sjá rautt? Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs. 3. júlí 2026 09:19 Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Þór og KR skyldu jöfn 3-3 í markaleik á Akureyri í dag þar sem að heimamenn komust í 3-0 eftir hreint ótrúlega byrjun á leiknum. 2. júlí 2026 20:04 „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ „Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. 2. júlí 2026 20:00 Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Ótrúlegt atvik gerðist í leik Þórs og KR í Bestu deild karla þar sem markmaður Þórs skoraði í mark KR-inga frá sínum eigin vallarhelmingi. 2. júlí 2026 17:37 Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Argentína - Egyptaland | Messi gegn Salah Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Sjá meira
Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, misstu bæði niður forystu í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild karla. KR náði í stig eftir að Þór hafði komist 3-0 yfir í Þorpinu með ótrúlegum mörkum og Víkingur vann KA með dramatísku sigurmarki af vítapunktinum. 3. júlí 2026 12:01
Átti Amin að sjá rautt? Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs. 3. júlí 2026 09:19
Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Þór og KR skyldu jöfn 3-3 í markaleik á Akureyri í dag þar sem að heimamenn komust í 3-0 eftir hreint ótrúlega byrjun á leiknum. 2. júlí 2026 20:04
„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ „Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. 2. júlí 2026 20:00
Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Ótrúlegt atvik gerðist í leik Þórs og KR í Bestu deild karla þar sem markmaður Þórs skoraði í mark KR-inga frá sínum eigin vallarhelmingi. 2. júlí 2026 17:37