Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. júlí 2026 08:29 Robinson sýndi engin viðbrögð þegar myndskeið af því þegar byssukúla hæfði Kirk í hálsinn var sýnt í dómsal. Fyrirtaka hófst í gær í dómsmálinu gegn Tyler James Robinson, sem hefur verið ákærður fyrir að skjóta áhrifavaldinn Charlie Kirk til bana síðastliðið haust.
Ákæruvaldið mun leggja mál sitt gegn Robinson upp á næstu fimm dögum og dómari ákveða hvort næg sönnunargögn liggi fyrir til að hefja réttarhöld. Erika Kirk, ekkja Charlie, og aðrir fjölskyldumeðlimir voru viðstaddir í gær en yfirgáfu salinn þegar vitnaleiðslur hófust. Ákæruvaldið hefur farið fram á dauðarefsinguna en saksóknarar segja erfðaefni tengja Robinson við skotvopnið sem þeir segja hafa verið notað til að bana Kirk, auk þess sem Robinson hafi játað morðið í skilaboðum sem hann skildi eftir. Robinson hefur ekki tekið formlega afstöðu til ákæruefnisins en mun mögulega lýsa sig saklausan eða sekan í vikunni. Verjendur hans hafa freistað þess að fá ákæruvaldið til að falla frá kröfu sinni um að Robinson verði dæmdur til dauða. Ákæruvaldið og verjendur í málinu hafa deilt nokkuð um það hvaða myndefni á að fá að rata fyrir dóm en gríðarlegt magn efnis var birt á samfélagsmiðlum í kjölfar skotárásarinnar. Verjendur Robinson hafa gagnrýnt að myndefni verði sýnt ef ekki er hægt að kalla þá sem tóku það upp fyrir dóm. Dómarinn hefur sagst munu vanda valið. Christopher Bagley, einn löggæsluaðila á vettvangi, bar vitni í gær og lýsti því meðal annar að hafa farið upp á þak byggingar sem var í beinni sjónlínu við Kirk. Þar sagðist hann hafa fundið ummerki um byssumann. Nokkuð hefur verið gert úr því að búkmyndavél Bagley hætti að taka upp á þaki byggingarinnar og hann fór ekki aftur þangað eftir að hann fékk nýja myndavél.
Bandaríkin Morðið á Charlie Kirk Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira