Reyndist ekki vera hópuppsögn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 14:29 Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri. Vísir/Vilhelm Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg í júní reyndist ekki vera hópuppsögn líkt og borgin lýsti yfir. Átján var sagt upp. Í tilkynningu frá borginni þann 25. júní síðastliðinn var greint frá því að borgarráð hefði samþykkt umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Breytingarnar hefðu áhrif á 27 stöðugildi og voru átján störf lögð niður. „Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst,“ stóð í tilkynningu borgarinnar um uppsagnirnar. Í svari Vinnumálastofnunar við fyrirspurn fréttastofu segir að stofnuninni hafi borist upplýsingar um fyrirhugaðar uppsagnir. Þar sem að átján störf voru lögð niður með uppsögnum var ekki um hópuppsögn að ræða sé litið til laga um hópuppsagnir. Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri. Tíu manns var sagt upp á skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og sviðið þar með lagt niður. Aðrir starfsmenn á sviði viðburða voru fluttir til. Einnig var mannréttindaskrifstofa borgarinnar lögð niður. Nýr meirihluti tók við eftir sveitarstjórnarkosningar og hefur hann talað fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar. Þegar hefur verið skipaður sérstakur hagræðingarhópur undir forystu Róberts Ragnarssonar, borgarfulltrúa Viðreisnar. Vinnumarkaður Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira
Í tilkynningu frá borginni þann 25. júní síðastliðinn var greint frá því að borgarráð hefði samþykkt umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Breytingarnar hefðu áhrif á 27 stöðugildi og voru átján störf lögð niður. „Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst,“ stóð í tilkynningu borgarinnar um uppsagnirnar. Í svari Vinnumálastofnunar við fyrirspurn fréttastofu segir að stofnuninni hafi borist upplýsingar um fyrirhugaðar uppsagnir. Þar sem að átján störf voru lögð niður með uppsögnum var ekki um hópuppsögn að ræða sé litið til laga um hópuppsagnir. Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri. Tíu manns var sagt upp á skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og sviðið þar með lagt niður. Aðrir starfsmenn á sviði viðburða voru fluttir til. Einnig var mannréttindaskrifstofa borgarinnar lögð niður. Nýr meirihluti tók við eftir sveitarstjórnarkosningar og hefur hann talað fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar. Þegar hefur verið skipaður sérstakur hagræðingarhópur undir forystu Róberts Ragnarssonar, borgarfulltrúa Viðreisnar.
Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.
Vinnumarkaður Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira