Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Agnar Már Másson skrifar 30. júní 2026 11:50 Ómar Örn Bjarnþórsson er verjandi Ming Ting. Vísir/Vilhelm Verjandi Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir manndráp í Edition-málinu, krefst þess að hún verði sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins, sem fer fram á sextán ára dóm yfir henni. Til vara fer verjandi fram á að ef hún verði sakfelld hljóti hún vægustu refsingu fyrir annað brot en hún er ákærð fyrir. „Það er ekki hægt að slá því föstu að hún hafi með neinum hætti haft aðkomu að andláti dóttur sinnar,“ sagði Ómar Örn Bjarnþórsson verjandi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vildi meina að sök hefði ekki sannast. Þar af leiðandi þyrfti að sýkna hana af öllum kröfum ákæruvaldsins. Í varakröfu er farið fram á að ef henni sé gerð refsing verði það minniháttarhlutdeild samkvæmt 213. grein, þ.e. að svipta einhvern lífi gegn brýnni beiðni viðkomandi, en það varðar allt að þriggja ára fangelsi. Í dag var sjötti og síðasti dagurinn í aðalmeðferð í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Saksóknari sagðist fyrr í dag fara fram á sextán ára fangelsisdóm yfir Ming. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dagurinn í réttarhöldunum í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Baksagan er sú að eiginmaðurinn hafði greinst með lífshættulegan nýrnasjúkdóm og átt stutt eftir ólifað og því viljað svipta sig lífi, að sögn Ming. Hún hefur sagst ekki hafa getað lifað án Emerics og ætlað að fylgja honum. Hún vill einnig meina að dóttir sín hafi sjálf viljað fylgja þeim og komist að þeirri niðurstöðu alfarið sjálf. Það hafi því verið um hópsjálfsvíg að ræða. Ming er ákærð fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samráði við eiginmann sinn, Emeric, með því að halda henni fastri inni á baði á hótelherbergi, bregða snöru um háls hennar og stinga hana í brjóstkassann tvívegis. Ómar benti á í málflutningi sínum að hvergi í ákæru kæmi fram hvernig Ming hafi nákvæmlega komið að andláti dóttur sinnar, heldur hafi hún þvert á móti neitað því að hafa gert allt það sem ákæran kveður hana hafa gert. „Hins vegar játar hún það að þau hafi öll verið á sama máli um að verknaðurinn skyldi fara fram,“ sagði Ómar. Skipulagningin og framkvæmdin hafi öll verið í höndum Emerics. Hann benti á að stunguáverkarnir á Ming og Catherine væru svipaðir og gætu bent til þess að þeir hafi verið gerðir af einstaklingi af svipuðum styrk og hæð. Auk þess hafi aðeins fundist DNA af Catherine og Emeric á snörunni sem mun hafa verið beitt. Því til stuðnings að Catherine hafi í raun viljað svipta sig lífi benti Ómar á það að vinnustaður Catherine, MarketStar, hafi haft samband við lögreglu að fyrra bragði og gefið fram mikilvægar upplýsingar í málinu. Í máli fyrrverandi starfsmanna Catherin hafi komið fram að Catherine hafi verið harðdugleg – en ekki þroskaskert eins og föðursystir hennar lýsti henni –, og að Catherine hafi skilið eftir tuskudýr sem „kveðjugjafir“ á vinnustaðnum, auk þess að hún hafi skilið vinnutölvuna sína og aðgangskort eftir á skrifborðinu. „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur,“ sagði hann um Catherine. Þá benti hann á að málið væri enn til umfjölunar hjá lögreglu í Frakklandi. Enn vantaði mörg gögn; mynbandsupptökur úr öryggismyndavélum á Edition væru handónýtar, fjármálaupplýsingar skoti og heilsufarsupplýsingar um Emeric og Catherine vantaði einnig. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira
„Það er ekki hægt að slá því föstu að hún hafi með neinum hætti haft aðkomu að andláti dóttur sinnar,“ sagði Ómar Örn Bjarnþórsson verjandi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vildi meina að sök hefði ekki sannast. Þar af leiðandi þyrfti að sýkna hana af öllum kröfum ákæruvaldsins. Í varakröfu er farið fram á að ef henni sé gerð refsing verði það minniháttarhlutdeild samkvæmt 213. grein, þ.e. að svipta einhvern lífi gegn brýnni beiðni viðkomandi, en það varðar allt að þriggja ára fangelsi. Í dag var sjötti og síðasti dagurinn í aðalmeðferð í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Saksóknari sagðist fyrr í dag fara fram á sextán ára fangelsisdóm yfir Ming. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dagurinn í réttarhöldunum í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Baksagan er sú að eiginmaðurinn hafði greinst með lífshættulegan nýrnasjúkdóm og átt stutt eftir ólifað og því viljað svipta sig lífi, að sögn Ming. Hún hefur sagst ekki hafa getað lifað án Emerics og ætlað að fylgja honum. Hún vill einnig meina að dóttir sín hafi sjálf viljað fylgja þeim og komist að þeirri niðurstöðu alfarið sjálf. Það hafi því verið um hópsjálfsvíg að ræða. Ming er ákærð fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samráði við eiginmann sinn, Emeric, með því að halda henni fastri inni á baði á hótelherbergi, bregða snöru um háls hennar og stinga hana í brjóstkassann tvívegis. Ómar benti á í málflutningi sínum að hvergi í ákæru kæmi fram hvernig Ming hafi nákvæmlega komið að andláti dóttur sinnar, heldur hafi hún þvert á móti neitað því að hafa gert allt það sem ákæran kveður hana hafa gert. „Hins vegar játar hún það að þau hafi öll verið á sama máli um að verknaðurinn skyldi fara fram,“ sagði Ómar. Skipulagningin og framkvæmdin hafi öll verið í höndum Emerics. Hann benti á að stunguáverkarnir á Ming og Catherine væru svipaðir og gætu bent til þess að þeir hafi verið gerðir af einstaklingi af svipuðum styrk og hæð. Auk þess hafi aðeins fundist DNA af Catherine og Emeric á snörunni sem mun hafa verið beitt. Því til stuðnings að Catherine hafi í raun viljað svipta sig lífi benti Ómar á það að vinnustaður Catherine, MarketStar, hafi haft samband við lögreglu að fyrra bragði og gefið fram mikilvægar upplýsingar í málinu. Í máli fyrrverandi starfsmanna Catherin hafi komið fram að Catherine hafi verið harðdugleg – en ekki þroskaskert eins og föðursystir hennar lýsti henni –, og að Catherine hafi skilið eftir tuskudýr sem „kveðjugjafir“ á vinnustaðnum, auk þess að hún hafi skilið vinnutölvuna sína og aðgangskort eftir á skrifborðinu. „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur,“ sagði hann um Catherine. Þá benti hann á að málið væri enn til umfjölunar hjá lögreglu í Frakklandi. Enn vantaði mörg gögn; mynbandsupptökur úr öryggismyndavélum á Edition væru handónýtar, fjármálaupplýsingar skoti og heilsufarsupplýsingar um Emeric og Catherine vantaði einnig.
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira