Körfubolti

Semja við leik­manninn sem var með 34 stig að meðal­tali á móti þeim í fyrra

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jadakiss Guinn spilar áfram á Íslandi en færir sig frá Suðurlandinu og í Hafnarfjörð.
Jadakiss Guinn spilar áfram á Íslandi en færir sig frá Suðurlandinu og í Hafnarfjörð. Vísir/Anton

Haukar hafa styrkt liðið sitt fyrir komandi tímabil í kvennakörfunni og sömdu við leikmann sem reyndist Haukaliðinu afar erfið í Bónusdeildinni á síðustu leiktíð.

Jadakiss Guinn hefur skrifað undir samning um að leika með Haukaliðinu á næstu leiktíð. Jada er kraftmikill bakvörður sem lék með Hamar/Þór síðasta vetur.

Guinn var með 24,1 stig, 7,7 fráköst og 5,6 stoðsendingar að meðaltali í leik en í leikjunum tveimur á móti Haukum var hún aftur á móti með 34,5 stig, 7,5 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Guinn skoraði 37 stig á verðandi heimavelli sínum í Ólafssal á Ásvöllum þar sem hún hitti úr 16 af 21 skoti sínu eða 76 prósent skotanna.

Guinn spilaði í fjögur ár í Tennessee Tech University við góðan orðstír en færði sig svo yfir í Chattanooga-háskólann og kláraði fimmta háskólaárið sitt þar. Þar hjálpaði hún skólanum sínum að vinna deildina sem þau spiluðu í og var valin MVP mótsins.

„Jada er sigurvegari og kemur með mikil gæði til Hauka og mun efla bæði sóknar- og varnarleikinn okkar. Við erum að fá leikmann sem skapar bæði fyrir sig og aðra og mun því hjálpa liðinu mikið,“ sagði Viktor Marinó Alexandersson, nýr aðalþjálfari Hauka.

Þess má geta að í Haukum hittir hún fyrrum liðsfélaga sinn, Sigrúnu Björgu Ólafsdóttur sem lék með henni í Chattanooga-skólanum, sem hafði þetta að segja um Jada: „Jada er frábær liðsfélagi og hæfileikaríkur leikmaður, ég er mjög spennt að spila með henni aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×