Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson og Björg Eva Erlendsdóttir skrifa 29. júní 2026 14:00 Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd umhverfissamtök hafa skrifað Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra bréf og óskað eftir því að réttur náttúrunnar verði tryggður í íslenskum lögum, eins og vera ber og Árósasamningurinn kveður á um. Eins og staðan er í dag hafa náttúruverndarsamtök ekki þann aðgang að dómsstólum sem til þarf. Veikt aðhald dómstóla með stjórnsýslunni bitnar fyrst og fremst á náttúrunni og möguleikum félagasamtaka til að gæta að því að grundvallarsjónarmið íslensks réttarríkis séu tryggð. Davíð Þór Björgvinsson, fyrirverandi dómari við mannréttindadómstól Evrópu, skrifaði bréfið fyrir samtökin og við vonumst til þess að sjálfsögðu og réttmætu erindi okkar verði vel tekið. Árósasamningurinn á rætur sínar í Ríó-yfirlýsingunni frá 1992. Þar segir: „Raunverulegur aðgangur skal veittur að réttar- og stjórnsýslukerfum þ. á m. réttarúrræðum.” Svo er ekki á Íslandi. Í bréfi sem Davíð Þór Björgvinssno skrifaði dómsmálaráðherra fh. Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands og í bréfi hans segir m. a: … gild rök standa til þess að hafin verði vinna við endurskoðun laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eða annarra laga ef svo ber undir. Markmiðið ætti að vera að tryggja að viðurkennd umhverfis- og náttúruverndarsamtök geti, að uppfylltum málefnalegum skilyrðum, borið undir dómstóla lögmæti stjórnvaldsákvardana sem varða umhverfi, náttúru og loftslag og fengið um það efnislega úrlausn hvort lög hafi verið brotin. Slík breyting myndi styrkja réttaröryggi, efla aðhald dómstóla með stjórnsýslunni og án efa stuðlað að betra samræmi íslensks réttar við Árósasamninginn, þróun EES/ESB-réttar, Mannréttindasáttmála Evrópu og grundvallarsjónarmið íslensks réttarríkis. Það er því eindregin afstaða Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands að þessi þróun gefi brýnt tilefni til að endurmeta hvort gildandi íslenskar reglur um lögvarða hagsmuni og aðild að dómsmálum samrýmist þeim sjónarmiðum og skuldbindingu sem Ísland hefur tekið á sig og að ráðstafanir verði gerðar til að gera nauðsynlegar lagabreytingar til að tryggja ótvírætt að svo verði. Í niðurlagi bréfsins segir: Jafnframt skal upplýst að samtökin hafa farið þess á leit við undirritaðan að kannaður verði grundvöllur á því að höfðað verði mál fyrir dómstólum til að freista þess að fá slíkan rétt umhverfissamtaka viðurkenndan í íslenskum rétti. Við vonum auðvitað að ekki komi til þess að höfða þurfi mál. Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtökum ÍslandsBjörg Eva Erlendsdóttir, Landvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Finnsson Björg Eva Erlendsdóttir Umhverfismál Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar