Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 20:02 Anton Ingi Leifsson, fyrir miðju, glaðbeittur eftir að hafa samið um að stýra aðalliði Hellerup. Hellerup Anton Ingi Leifsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari Hellerup sem spilar í dönsku C-deildinni í fótbolta.
Anton er 31 árs FH-ingur með mikil þjálfaragen en faðir hans er Leifur Garðarsson sem meðal annars þjálfaði Fylki og Víking eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari FH. Anton hefur starfað fyrir Hellerup síðustu átta ár og fær nú tækifæri sem þjálfari meistaraflokks, eftir að hafa stýrt U19-liðinu og áður U17-liðinu. Hellerup hafnaði í 6. sæti á síðustu leiktíð en AB, undir stjórn Fannars Berg Gunnólfssonar og áður Jóhannesar Karls Guðjónssonar, vann deildina og fór upp í B-deild ásamt Vendsyssel. „Anton er virkilega fær þjálfari sem við höfum getað fylgst náið með í nokkur ár hjá HIK. Hann hefur unnið frábært starf, fyrst með U17-liðinu okkar og síðan U19, og hann á svo sannarlega skilið að bera ábyrgð á aðalliðinu okkar frá og með deginum í dag,“ segir Per Frimann, yfirmaður íþróttamála hjá Hellerup, á heimasíðu félagsins. HIK endaði í 6. sæti á síðasta tímabili og fráfarandi þjálfari, Daniel Simacon, var einnig fenginn úr eigin akademíu HIK. Og nú gerist það sama með nýja 31 árs gamla aðalþjálfarann. „Við erum að sjálfsögðu stolt af því að geta ráðið aðalþjálfara okkar innan úr félaginu. Það gerðum við með Daniel [Simacon, fyrrverandi þjálfara] og höfum áður gert með þjálfurum eins og Kristoffer Wichmann [í dag aðstoðarþjálfari hjá FCK] og Christian Larsen [í dag hjá Vejle] – og það hefur í hvert skipti verið jákvæð upplifun og reynsla fyrir allt félagið,“ segir Per Frimann. Sjálfur er Anton stoltur en hann mun stýra sinni fyrstu æfingu 2. júlí: „Ég er gríðarlega ánægður með ráðninguna og mun njóta þess að vinna með þessum leikmannahópi sem býr yfir miklum möguleikum – með blöndu af reyndum og ungum leikmönnum. Ég hef verið hjá HIK síðan 2018 og er stoltur af því að fá þetta tækifæri.“
Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira