Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 10:31 Vozinha fagnar jafnteflinu og hreinu marki á móti Evrópumeisturum Spánar með því að halda uppi fána Grænhöfðaeyja. Getty/Buda Mendes Fyrir aðeins nokkrum dögum var Josimar Dias, landsliðsmarkvörður Grænhöfðaeyja, nær óþekktur leikmaður. Saga hans sýnir svart á hvítu hvað líf manna getur breyst mikið á stuttum tíma.
Óþekkti markvörðurinn var með fimmtíu þúsund fylgjendur á Instagram og þeir voru nær eingöngu í heimalandi hans. Í dag er þessi fjörutíu ára gamli markvörður frá Grænhöfðaeyjum sem gengur undir gælunafninu Vozinha með fleiri fylgjendur en Tom Brady. Annar er sjöfaldur Super Bowl-meistari, alþjóðlegt goð og einn þekktasti íþróttamaður í sögu bandarískra íþrótta. Cape Verde's keeper Vozinha had 50k IG followers eight days ago ⏪He now has as many followers as Tom Brady 😂👏 pic.twitter.com/pwsZMoGdjF— ESPN UK (@ESPNUK) June 22, 2026 Hinn er markvörður frá þjóð sem telur rúmlega hálfa milljón íbúa og er að spila sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti FIFA. Á blaði ætti þetta að vera ómögulegt. En heimsmeistaramót FIFA hefur alltaf verið öðruvísi. Það er sviðið þar sem leikmaður frá lítilli eyþjóð getur fangað athygli milljarða og orðið heimsþekktur á einni nóttu. Vozinha komst ekki þangað með risastórum kostunarsamningum eða með hjálp netfyrirtækja. Vozinha fékk reyndar mikla hjálp frá brasilískum áhrifavaldi. Það var aðeins byrjunin en framhaldið hefur verið eitthvað annað. Hann komst hingað vegna þess að heimurinn horfði á hann standa sig gegn Spáni, neita að bugast og skrifa eina mögnuðustu öskubuskusögu sem fótboltinn hefur séð í mörg ár. Hann hitti líka marga í hjartastað þegar hann kallaði eftir móður sinni á stóru stundinni og tárin runnu þegar hann lýsti því yfir að hann hefði viljað sjá móður sína upplifa þetta á staðnum. Vozinha fór úr 50.000 fylgjendum í 15,6 milljónir á rúmri viku. Næst á dagskrá eftir HM er síðan að finna sér nýtt lið og það verður eflaust nóg af símtölum frá áhugasömum félögum á næstunni. View this post on Instagram A post shared by Cape Verdean Beautiful People #iamcvbp (@iamcvbp)
HM 2026 í fótbolta NFL Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira