Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk Kristján Már Unnarsson skrifar 24. júní 2026 09:10 Knútur Arnar Óskarsson er ferðaþjónustubóndi á Ósum á Vatnsnesi. Egill Aðalsteinsson Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Hvítserk en myndir af klettinum eru með þeim algengustu sem birtast í landkynningum um Ísland. Því fylgir að þar er krökkt af túristum. Bændur á næsta bæ, Ósum, hafa nýtt sér frægð klettsins með rekstri ferðaþjónustu í hartnær fjörutíu ár. Þar er glettilega mikil umferð. Útsýnispallurinn við Hvítserk er á háum sjávarbakka.Egill Aðalsteinsson „Það er nefnilega alveg svakalega mikil umferð um Vatnsnesið,“ segir Knútur Arnar Óskarsson, ferðaþjónustubóndi á Ósum. „Ég hugsa að það gætu verið um 150 þúsund manns sem eru að heimsækja Hvítserk yfir sumartímann. Það er alveg rosalega mikil umferð,“ segir Knútur. Landeigendur hafa núna í samstarfi við sveitarfélagið Húnaþing vestra hafið undirbúning að því að bæta aðstöðuna og fengið í lið með sér danska arkitektastofu, Nordic Office of Architecture, en þar starfar Íslendingurinn Jón Rafnar Benjamínsson. Svona gæti fyrirhugað þjónustuhús við Hvítserk litið út.Nordic Office of Architecture „Sem er búinn að hanna alveg glæsilega heildarhönnun á svæðinu, sem felur í sér palla, göngustíga, stiga niður í flæðarmál, því að þetta er í sjálfu sér hættulegt þegar fólk er að klöngrast hérna niður eftir, og nýtt þjónustuhús og stækkun á bílastæði,“ segir Knútur. Aðstaðan mun einnig þjóna ósasvæðinu, sem er í göngufæri skammt frá. „Þetta eru tveir seglar í raun og veru. Það er Hvítserkur og síðan eru það selaláturin við Sigríðarstaðasand. Fólk er líka að koma að skoða þau.“ Svona sjá hönnuðir fyrir sér að þjónustumiðstöðin við Hvítserk verði að innan.Nordic Office of Architecture Knútur telur brýnt að bæta aðstöðuna. „Staðan í dag er í sjálfu sér sú að þetta er hættulegt. Það er hættulegt að fólk hrapi hérna niður og meiði sig.“ -En hvernig á að borga fyrir mannvirkin? „Það verður náttúrulega sótt um styrki til verkefnisins. En það er í sjálfu sér hafin gjaldtaka til að safna peningum í verkefnið. Gjaldtakan, eða þeir peningar sem safnast með gjaldtöku á bílastæðagjaldi, verði notaðir til þess að fjármagna verkefnið að einhverju leyti.“ Frá bílastæðinu við Hvítserk.Egill Aðalsteinsson -En hvenær gætu framkvæmdir hafist og verkið klárast? „Það væri mjög vonandi að framkvæmdir geti hafist næsta sumar. Og eigum við ekki bara að vera bjartsýn á að þetta geti gerst á næstu tíu árum. -Er það ekki dálítil svartsýni? „Ætli það sé ekki bara raunsæi,“ svarar bóndinn á Ósum á Vatnsnesi hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Húnaþing vestra Ferðaþjónusta Öryggi á ferðamannastöðum Tengdar fréttir Slasaðist þegar hann féll niður bratta við Hvítserk Ferðamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll niður bratta brekku niður í fjöru við Hvítserk í dag. Maðurinn var með meðvitund þegar björgunarfólk kom á staðinn. Til stóð að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. 10. maí 2023 20:06 Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira
Slasaðist þegar hann féll niður bratta við Hvítserk Ferðamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll niður bratta brekku niður í fjöru við Hvítserk í dag. Maðurinn var með meðvitund þegar björgunarfólk kom á staðinn. Til stóð að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. 10. maí 2023 20:06
Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15