„Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júní 2026 23:19 Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, þurfti að játa sig sigraðan gegn Víkingi. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, segir að leikmenn sínir hafi fengið sviðsskrekk þegar þeir tóku á móti Víkingi í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. „
Við vorum flottir fyrsta hálftímann og héldum þeim í skefjum. Fengum svo nokkur fín færi eftir gegnumbrot og hefðum getað gert betur þar. Eftir fyrsta markið virtumst við hins vegar missa trúna og það var mjög erfitt að fá tvö mörk í andlitið sitt hvoru megin við hálfleikinn,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram. „Fyrir þennan leik var búið að blása upp slag þessara liða og við virtumst ekki höndla það alveg nógu vel. Við urðum litlir í okkur á stóra sviðinu og flestallir leikmenn mínir voru mjög ólíkir sjálfum sér. Það kann ekki á gott á móti jafn sterku liði og Víkingur hefur á að skipa,“ sagði Rúnar þar að auki. „Þessi skellur sýnir okkur að við eigum enn nokkuð í land með að geta barist um Íslandsmeistaratitilinn en að sama skapi tekur hann ekki frá okkur þau stig sem við erum komnir með. Við erum komnir vel á veg í þroskaferli liðsins en þurfum að leggja á okkur meiri vinnu til þess að nálgast lið á borð við Víking,“ sagði hann. „Við verðum að viðurkenna það að sigur Víkings var síst of stór þegar á hólminn var komið. Það er enginn heimsendir að tapa fyrir Víkingi en það er svekkjandi að ná ekki að sýna sitt rétta andlit í þessum toppslag. Við bara lærum af þessum leik og höldum áfram að bæta okkar leik,“ sagði Rúnar.
Íslenski boltinn Besta deild karla Fram Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira