Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. júní 2026 19:03 Hólmsteinn Harðarson vonar að gjörningurinn verði til góðs í baráttunni gegn hvalveiðum en er þakklátur áhöfn Hvals 9 fyrir að hugsa um sig á meðan þeir sigldu með hann út á haf. Vísir/Lýður Valberg Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns.
Hólmsteinn kom sér fyrir í tunnu um borð í Hval 9 um tvöleytið í gær en um hálf fimm var skipinu stefnt á haf út. Hann segist ekki hafa trúað því að það myndi fara alla leið til Hvalfjarðar, en áhöld eru uppi um það hvort Hólmsteinn hafi gefið leyfi fyrir því að vera skráður sem farþegi þegar hann gaf upp kennitölu. Ekki hefur náðst í Kristján Loftsson framkvæmdastjóra Hvals vegna málsins. „Ég trúði því að við myndum mögulega bara taka smá hring og snúa við en það gerðist ekki,“ segir Hólmsteinn í samtali við fréttastofu. Þegar hann hafi áttað sig á hvað í stefndi hafi hann brotnað niður. „Ég er mjög þakklátur fyrir áhöfnina hvernig þau brugðust við þegar ég....ég brotnaði niður, mér leið svo illa, ég fór að hágráta...“ Þakklátur skipverjunum Einn skipverjanna hafi þá komið upp og hughreyst hann. „Ég fór úr hönskunum og húfunni og henti því niður og fór svo úr úlpunni og þá kallar hann Stebbi og segir: Ekki henda úlpunni. En ég sleppti henni og ég veit ekki betur en að hann hafi gripið hana og hann vafði henni utan um mig og hélt svo utan um mig...og deildi einhverju um lífið sitt sem gerði þessa mjög erfiðu lífsreynslu mun bærilegri, bærilega bara. Þannig, að takk fyrir.“ Ég heyri að þú ert mjög þakklátur skipverjunum? „Já, þetta var og er mjög erfitt...“ Eftir rúmlega þriggja klukkutíma ferðalag, rétt fyrir átta kom skipið svo að bryggju í Hvalfirði og mátti þá sjá skipverja með Hólmsteini. Körfubíll með lögreglumanni tók svo á móti Hólmsteini á bryggjunni og við tók klukkustundarlangt samtal. „Hann er í vinnunni sinni og ég er að gera það sem ég trúi á, þetta var erfitt, ef ég á að kalla það samtal, þá var þetta erfitt samtal, á einhverjum tímapunkti hætti ég að tala,“ segir Hólmsteinn. „Ég var að reyna að berjast við einhver grip þarna, það gekk ekki nógu vel, meira að segja þó ég væri að halda mér í tunnuna þá náðu þeir að toga mig upp, rosalega sterkir hahaha.“ Þannig þegar þú fórst niður úr tunnunni þá ætlaðiru ekki að fara niður? „Nei, ég vildi vera eins lengi ég gat.“ Hann segist íhuga að leita réttar síns, engin ákvörðun hafi verið tekin um það. Hann bindur í hið minnsta vonir við að gjörningurinn verði til góðs. „Ég vona að hvalveiðar hætti, ég vona að fólk hætti að neyta dýra og dýraafurða, það er mín von.“
Hvalveiðar Hvalir Hvalfjarðarsveit Reykjavík Dýr Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Tengdar fréttir Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. 18. júní 2026 20:51 Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. 18. júní 2026 21:06 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. 18. júní 2026 20:51
Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. 18. júní 2026 21:06