Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Birgir Olgeirsson skrifar 19. júní 2026 12:49 Lögreglan fór inn á átta staði á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku vegna aðgerða gegn vændi og mansali. Ívar Fannar Nokkrir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku vegna gruns um kaup á vændi.
Um er að ræða rannsókn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í sem varðar grun sölu á vændi og mansal. Höfð voru afskipti af hópi kínverskra kvenna sem lögregla taldi að kynnu að hafa verið gerðar út í vændi. Samkvæmt íslenskum lögum er ekki refsivert að selja vændi. Refsing beinist hins vegar að þeim sem kaupa vændi, þeim sem hafa milligöngu um vændi annarra eða hafa af því tekjur. Mennirnir handteknir og undirgengust skýrslugerð áður en þeim var boðið að ljúka málinu með sektargerð. Vísir/Vilhelm Þá var einnig til rannsóknar hvort einhver hefði haft milligöngu um sölu vændis. Í 206. grein almennra hegningarlaga segir að sá sem greiðir eða heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi geti sætt sektum eða fangelsi allt að einu ári. Sá sem hefur atvinnu eða viðurværi af vændi annarra eða stuðlar að því með milligöngu að aðrir hafi samræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu getur sætt fangelsi allt að fjórum árum. Ráðherra hefur boðað breytingar Dómsmálaráðherra hefur boðað breytingar á vændislöggjöfinni. Í landsáætlun dómsmálaráðuneytisins gegn kynbundnu ofbeldi er meðal annars lagt upp með að skoða hvort hægt verði að nafngreina vændiskaupendur þegar mál þeirra fara fyrir dómstóla. Þá verði unnið að því að þyngja refsingar þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sagt að núverandi framkvæmd dragi ekki nægilega úr eftirspurn eftir vændi, þar sem vændiskaup endi í framkvæmd oft með sekt nema um ítrekuð brot sé að ræða. Þá hefur hún sagt mikilvægt að réttarstaða þeirra sem selja vændi verði treyst, meðal annars þegar kemur að auglýsingum um vændi. Fréttin hefur verið uppfærð
Lögreglumál Vændi Mansal Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira