Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júní 2026 10:20 Dánarorsök liggur ekki fyrir en í bandarískum miðlum er greint frá þvi að krufning fari nú fram. Getty Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes.
Breska ríkisútvarpið (BBC) er meðal þeirra miðla hefur haft eftir lögreglunni í Nashville sem sagði að Keith, sem var 29 ára þegar hann lést, hefði fundist látinn af lögreglumönnum sem voru sendir að heimili hans til að framkvæma velferðareftirlit, en að „ekkert saknæmt sé talið hafa átt sér stað“ í tengslum við andlát hans. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp. Keith, sem hét réttu nafni Brytavious Chambers, var einna þekktastur fyrir að hafa komið að framleiðslu á laginu Sicko Mode sem færði honum sína fyrstu Grammy-tilnefningu árið 2019. Þá var hann einungis ríflega tvítugur. Sagðir mér ekki að þú værir að fara Hann var tilnefndur í annað sinn í flokki besta rapplagsins árið 2024 fyrir vinnu sína við lagið Rich Flex með Drake og 21 Savage. Keith vann með fjölda listamanna í gegnum árin, þar á meðal við lögin Before I Let Go með Beyoncé, Holiday með Lil Nas X, Not Alike með Eminem og I Did It með DJ Khaled. Keith frá Memphis er talinn eiga þátt í að koma tónlistarkonunni Sexyy Red á framfæri og framleiddi meðal annars eitt af farsælustu lögum hennar Pound Town sem og fjölda annarra laga eins og Get It Sexyy, sem nýlega var spilað í HBO-þáttaröðinni Euphoria. Rapparinn BlocBoy JB frá Memphis, sem þekkti Keith frá 14 ára aldri, birti færslu á Instagram um andlát hans og skrifaði: „Við töluðum saman á hverjum degi, þú sagðir mér ekki að þú værir að fara.“ Keith hóf feril sinn á meðan hann var enn í námi við Middle Tennessee State University, þar sem hann lauk gráðu í samþættum fræðum og fjölmiðlastjórnun. Hér fyrir neðan má hlusta á lifandi flutning söngkonunnar Beyoncé á laginu Before I let go.
Andlát Bandaríkin Tónlist Hollywood Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira