Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar 19. júní 2026 09:31 Fyrsta aldarfjórðung ævi minnar bjó ég í verkamannabústöðunum á Ásvallagötu í Reykjavík. Á þessum árum vandi ég komur mínar í hina rómuðu verslun Kjötborg, sem er staðsett á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu. Mér er það minnisstætt sem barn og unglingur að geta rölt útí búð og látið skrifa kókómjólk, fingrakex og lakkrísrör á reikning hjá þeim bræðum Gunnari og Kristjáni Jónassonum, sem hafa rekið verslunina um áratugaskeið. Mamma býr enn á Ásvallagötu og fer reglulega í verslunina. Ég heimsótti kaupmennina á horninu í hinsta sinn í vikunni, en Kjötborg lokar endanlega á næstu dögum. Kristján var á vaktinni og tók vel á móti mér. Félagsmiðstöðin Kjötborg Lokun Kjötborgar markar tímamót. Á áttunda og níunda áratugnum voru í kringum sex hverfisverslanir á og við Ásvallagötu. Það var fyrir tíma stórmarkaða sem tóku síðar yfir markaðinn. Kjötborg er eina verslunin sem lifði af samkeppnina allt fram á þennan dag. Ein ástæða þess er sú að þjónustulund bræðranna hefur verið einstök. Ef eitthvað var ekki til þá skutust þeir eftir vörunni sem var þá komin í hús skömmu síðar. Öllu var reddað. Viðskiptavinurinn hefur þannig ávallt verið í fyrirrúmi í Kjötborg – ekki bara í orði eins og stundum vill gerast – heldur á borði. Önnur ástæða er sú að Kjötborg hefur sinnt hlutverki félagsmiðstöðvar hverfisins. Þangað hafa ungir sem aldnir vanið komur sínar, ekki einungis til að versla nauðsynjar, heldur til að sækja í félagsskap. Bræðurnir hafa ekki eingöngu verið kaupmenn heldur vinir og sálusorgarar þeirra sem hafa vanið komur sínar í verslunina. Í Kjötborg er eins og það hægi á tímanum og þar hefur alla tíð verið menningsem einkennist af hjálpsemi, greiðvikni og mennsku; gilda sem virðast vera á undanhaldi í hraðari og ópersónulegri tíðaranda nútímans. Verslunin hefur þannig, sinnt hlutverki „þriðja rýmisins”, sem félagsfræðingurinn Ray Oldenburg skilgreindi sem mikilvæga staði utan heimilis og vinnu þar sem daglegt líf fólks fer fram. Í þriðja rýminu kjarnast nærsamfélagið. Þar hittir fólk nágranna sína, kynnist þeim, og skapar félagslegan auð í formi trausts, samhjálpar og vináttu. Slíkir staðir ala af sér samskipti sem gefa fólki tilfinningu fyrir að tilheyra samfélagi sem styrkir og nærir. Ópersónulegir stórmarkaðir Stórmarkaðir hafa tekið við af hverfisverslunum eins og Kjötborg. Rekstur þeirra gengur út á að hámarka arðsemi og skilvirkni, með meiri áherslu á framboð en þjónustu og að viðskiptavinir kaupi meira en þeir þurfa. Þeir eru ópersónulegir og ómanneskjulegir þar sem viðskiptavinum er ýtt í að sniðganga aðrar manneskjur. Þess í stað eru þeir vélaðir í að skanna vörurnar sjálfir í snjallasímana sína eða í gegnum sjálfsafgreiðsluvélar. Stórmarkaðir hafa þannig komið viðskiptavinum upp á að þjónusta sjálfa sig og spara með því sjálfum sér ómakið – þó undir yfirskrift þess að með því séu þeir að veita betri þjónustu. Í stórmörkuðum er þó sjaldnast hægt að leita til starfsfólks sem getur ráðlagt manni hvernig best sé að elda steikina, hvaða sjampó er best við flösu, eða ræða hvar besta veðrið verður um helgina. Það getur reynst þrautin þyngri að finna eitthvað starfsfólk yfir höfuð. Bognir í baki strunsa viðskiptavinir því áfram eins og í leiðslu, í sjálfboðavinnu fyrir stórmarkaðina, með annað augað á skjáöppunum sínum og hitt á litríku vöruúrvalinu. Og án þess að eiga í samskiptum við aðra eða vera meðvitaðir um fólkið í kringum sig. Þetta eiga að kallast framfarir. Endalok umhyggjukaupmannna? Skilningur á mikilvægi þriðja rýmisins fyrir félagsleg tengsl okkar er á undanhaldi í nútímasamfélagi. Samfélagi sem tilbiður tæknilega framfarahyggju á kostnað tengsla og umhyggju. Endalok kaupmannanna á horninu er einungis eitt dæmi þeirrar þróunar sem geysist áfram og veltir öllu sem fyrir er úr sessi, að því er virðist undir yfirskriftinni „meiri neysla, minni þjónusta og mennska.” Kannski eru Gunnar og Kristján einir af síðustu móhíkönum íslenskra umhyggjukaupmanna sem víkja hver af öðrum af sjónarsviðinu fyrir ópersónulegum og þjónustusnauðum vélrænum gróðamaskínum, í nafni hinnar svokölluðu framfarahyggju. Samkvæmt nýjustu fréttum stendur til að í húsnæði „félagsheimilisins“ við Ásvallagötu verði opnað kaffihús, í anda þriðja rýmisins. Vonandi mun rýmið því eftir sem áður nýtast til að hlúa að félagslegri velferð íbúa hverfisins í anda bræðranna. Ég hef þó efasemdir um að kjarnahópur Kjötborgar, sem fólk eins og við mamma höfum tilheyrt í gegnum tíðina, sé líklegur til að venja komur sínar í rými sem ætlað er að hámarka arðsemi með því að selja bolla af Cappuccino og croissant á þúsundir króna – en sjáum hvað setur. Með þessum pistli langar mig einfaldlega til að þakka þeim bræðrum, Gunnari og Kristjáni, fyrir þeirra ómetanlega og óeigingjarna framlag til samfélagsins í kringum Ásvallagötu. Framlag þeirra – og þeirra líka – er mun meira virði en við flest gerum okkur grein fyrir. Þeirra verður sárt saknað. Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og höfundur bókarinnar Sjáumsamfélagið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðar Halldórsson Verslun Reykjavík Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar