Körfubolti

Ólafur Ólafs fékk fálka­orðuna

Sindri Sverrisson skrifar
Daniel Mortensen, Ólafur Ólafsson og Jordan Semple fögnuðu vel þegar Grindavík varð Íslandsmeistari í vor með sigri gegn Tindastóli á Sauðárkróki.
Daniel Mortensen, Ólafur Ólafsson og Jordan Semple fögnuðu vel þegar Grindavík varð Íslandsmeistari í vor með sigri gegn Tindastóli á Sauðárkróki. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson

Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu.

Halla Tómasdóttir forseti veitti Ólafi fálkaorðuna á Bessastöðum í dag, á þjóðhátíðardegi Íslands, en hann var í hópi fjórtán Íslendinga sem hlutu þennan mikla heiður að þessu sinni.

Í tilkynningu segir að Ólafur hljóti fálkaorðuna „fyrir forystuhlutverk fyrir sína heimabyggð á krefjandi tímum.“

Ólafur hefur verið fyrirliði og í fararbroddi hjá körfuboltaliði Grindavíkur síðustu ár þegar liðið hefur ekki aðeins þurft að berjast við önnur lið í mestu samkeppni í sögu efstu deildar hér á landi, heldur líka þurft að spjara sig í baráttu við náttúruöflin.

Grindavíkurliðið þurfti lengi að æfa og spila utan Grindavíkur, í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesi og rýmingu bæjarins þann 10. nóvember 2023, eins og fjallað var meðal annars um í verðlaunaþáttum þar sem Ólafur lék stórt hlutverk.

Þrátt fyrir þessa stöðu tókst Ólafi og félögum, með sterkt bakland og alla Grindvíkinga á bakvið sig, að halda úti einu besta körfuboltaliði landsins sem ekki aðeins sameinaði bæjarbúa heldur náði á endanum að landa Íslandsmeistaratitlinum í vor, eftir þrettán ára bið, með sigri gegn Tindastóli í eftirminnilegu úrslitaeinvígi.

Ólafur hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og mun spila áfram með liðinu næstu tvö árin.


Tengdar fréttir

Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna

Íslandsmeistarar Grindavíkur munu áfram leika undir stjórn þjálfarans Jóhanns Þórs Ólafssonar á næstu leiktíð. Íslenskir lykilmenn hafa einnig framlengt samninga sína og DeAndre Kane verður áfram með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×