„Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Árni Sæberg skrifar 15. júní 2026 14:55 Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Vísir/Ívar Fannar Aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gefur lítið fyrir gagnrýni veitingamanna vegna eftirlits á skemmtistöðum á föstudagskvöldið. Ekki sé hægt að framkvæma eftirlit með aðstæðum starfsmanna nema þeir séu að störfum.
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, sagði um helgina að það vekja furðu að lögreglan hefði ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma, sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað á föstudagskvöld. Samtökin gerðu ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu. Greint var frá því að lögreglan hefði farið inn á staði í Reykjavík og Hafnarfirði á föstudagskvöld til að kanna stöðu rekstrarleyfa og starfsleyfa öryggisfyrirtækis sem sá þar um dyravörslu. Í ljós hefði komið að starfsleyfin væru ekki til staðar og stöðunum lokað. Á einum staðanna beindust aðgerðir að hugsanlegu skattlagabroti og honum var lokað í samstarfi við skattayfirvöld, að sögn lögreglu. Framkvæma eftirlitið þegar vinnustaðir eru opnir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu, segir í samtali við Vísi að lögreglan hafi eftirlitsskyldu gagnvart veitingastöðum, sem rækt sé í samstarfi við Vinnumáeftirlitið, vinnumálastofnun og Skattinn. Þá hafi hún einnig eftirlit með leyfisskyldum öryggisþjónustum, sem leigi út dyraverði. „Við erum sem sagt að fara á alls konar vinnustaði, hvort sem það eru veitinga- og skemmtistaðir, byggingariðnaður og svo framvegis og framvegis, alls konar staðir. Við erum að framkvæma rauneftirlit á vinnustöðunum hvenær sem er sólarhrings, þegar þeir eru opnir. Það geta verið vinnustaðir sem eru bara opnir á dagvinnutíma, svo aðrir sem eru á dag- og kvöldtíma og svo eru aðrir sem eru allan sólarhringinn.“ Með þessu eftirliti fái stofnanirnar upplýsingar um hagi starfsfólks, hvort það fái greidd laun, sé með tilskilin leyfi og þar fram eftir götunum. „Skemmtistaðir eru bara opnir á kvöldin og um helgar, kannski eru mismunandi opnunartímar eftir hverjir eru, þannig að við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma af því að við erum að reyna að ná til starfsfólksins. Því miður er það svo á mörgum vinnustöðum að erum við að finna starfsfólk sem er ekki á launum eða eru á svo lágum launum að þau eru bara ekki mannsæmandi.“ Vilja vera sýnileg Meðal þess sem Einar gagnrýndi varðandi aðgerðir lögreglu þegar eftirlit með veitingastöðum fer fram var að lögreglumenn mættu í fullum skrúða, eins og hann orðaði það, og lokuðu stöðum. Unnar Már segir það einfaldlega vera vegna þess að lögregla vilji vera sýnileg þegar hún er að störfum. Hvort sem það er gagnvart veitingamönnum, gestum eða öðrum almenningi. „Stundum er kvartað yfir því að við séum í einhverjum feluleik. Við erum að reyna að koma í veg fyrir það með því að vera bara mjög áberandi.“
Lögreglumál Veitingastaðir Vinnumarkaður Tengdar fréttir Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Eftirlit með starfsemi skemmistaða verður að stórum hluta sýndareftirlit ef það má aðeins fara fram utan háannatíma, að mati framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Talsmaður hagsmunaaðila gagnrýndi um helgina að lögregla hefði lokað skemmtistöðum um helgina. 15. júní 2026 08:24 Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Anibal Hernandez er einn eigenda skemmtistaðarins Exit sem var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattsins aðfaranótt laugardags. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir lokunina og að dyraverðirnir sem nú starfi á staðnum starfi ekki hjá öryggisþjónustunni sem aðgerðirnar beindust gegn. 14. júní 2026 15:18 Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. 13. júní 2026 07:46 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira
Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Eftirlit með starfsemi skemmistaða verður að stórum hluta sýndareftirlit ef það má aðeins fara fram utan háannatíma, að mati framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Talsmaður hagsmunaaðila gagnrýndi um helgina að lögregla hefði lokað skemmtistöðum um helgina. 15. júní 2026 08:24
Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Anibal Hernandez er einn eigenda skemmtistaðarins Exit sem var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattsins aðfaranótt laugardags. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir lokunina og að dyraverðirnir sem nú starfi á staðnum starfi ekki hjá öryggisþjónustunni sem aðgerðirnar beindust gegn. 14. júní 2026 15:18
Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. 13. júní 2026 07:46