Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Freyja Þórisdóttir skrifar 13. júní 2026 12:12 Ólafur Jóhann Borgþórsson er prestur og framkvæmdastjóri Herjólfs. Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna. „
Það gekk allt mjög vel í byrjun,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við blaðamann Vísis en bætir svo við að veturinn hafi einkennst af hrakföllum. Fyrst hafi þurft að aflýsa ferðum um þjóðhátíðarhelgina í fyrrasumar, því næst hafi skipið farið í slipp í september „svo bilanir í desember, sem stoppaði okkur sem betur fer ekki, svo lokast höfnin í janúar,“ og upptalningin heldur áfram en nýjasti Þrándurinn í götu Ólafs og annarra í Eyjum er bilun í öðrum mótor skipsins. „Það þarf að sérframleiða koparvír, sem tók lengri tíma en ætlað var, og ekkert hægt að vinna í mótornum á meðan,“ segir Ólafur en hann segir það „bagalegt“ að viðgerðinni seinki um þrjár vikur. Skilji vel að staðan sé ekki ákjósanleg Það sé mjög vont að skipið sé á öðrum mótornum alltaf og að það sigli hægar fyrir vikið. „Við getum ekki siglt þessar átta ferðir, náum bara sjö sem er of lítil flutningsgeta,“ segir Ólafur. Hann segir muna gríðarlega miklu um að Baldur sé að sigla fyrir sunnan. Hann sýni því skilning að fólk sé ósátt við að Breiðafjarðarferjan Baldur sé hætt siglingum á Breiðafirði en ítrekar að staðan sé slæm. „Auðvitað er sárt að eiga ekki fleiri tiltækar ferjur en Baldur er varaskip Herjólfs og við höfum ekki veg sem við getum keyrt,“ segir hann og ítrekar að það muni gríðarlega miklu um það að hafa Baldur með í siglingunni. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur haft orð á því að það hafi komið leiðinlega á óvart að vélarnar sem knýji Herjólf séu sérsmíðaðar og að það flæki fyrir þegar upp komi bilanir. Ólafur samsinnir því að þetta sé ekki til þess að bæta úr skák en að það sé almennt erfitt að nálgast varahluti enda séu þeir ekki hilluvara. „Það er vont hvað það hefur tekið langan tíma að fá allt sem þarf til að laga þetta en almennt séð tekur langan tíma að fá varahluti,“ segir hann og bætir við að það sé „bagalegt að þurfa að bíða í níu mánuði eftir mótor“ og að „auðvitað tæki það örugglega styttri tíma ef vélin væri ekki sérsmíðuð“. Sjá fyrir endann á hrakföllunum Vírinn sé á leið frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er og að þetta sé unnið eins hratt og mögulegt sé. „Þetta ætti að vera komið í lag um og eftir miðjan júlí og það var að sjálfsögðu ferlega fúlt að fá þessa seinkun, planið var að sigla á morgun og fara svo með hann í viðgerð. Við vissum að það yrði einhver seinkun en ekki svona mikil,“ segir hann. Umferðin um helgina hafi verið gott dæmi um hvernig traffík myndast á sumrin. Það séu fram undan „þessar sömu gríðarlegu annir“ og að hann voni innilega að þessum hrakföllum fari að linna sem allra fyrst. „Núna um helgina er fullt í langflestar ferðir, svo eru áfram íþróttahátíðir og goslokahátíð,“ segir hann en það voru af þeim tuttugu og fimm ferðum sem skipulagðar eru um helgina að minnsta kosti tuttugu fullbókaðar. Baldur sigli fimm ferðir á dag og Herjólfur sjö og að þrátt fyrir um helmingi minna bíldekk sé Baldur að dekka „þessa áttundu ferð“ sem skipulögð sé á sumrin. Ólafur er á því að veturinn sé búinn að vera virkilega strembinn en það sjái loks fyrir endann á þessu. „Við vonum að þetta fari nú að verða búið, þetta er búið að vera alveg hræðilegt,“ segir hann.
Ferjan Baldur Vestmannaeyjar Herjólfur Vesturbyggð Samgöngumál Tengdar fréttir „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ „Það er allt í uppnámi af því hann [Baldur] er farinn,“ segir Björn Samúelsson, húseigandi í Flatey á Breiðafirði og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann skipulagði í dag þögul mótmæli við „svívirðilegri“ ákvörðun innviðaráðherra, sem ákvað nær fyrirvaralaust að senda Breiðafjarðarferjuna Baldur til Vestmannaeyja, þar sem hún mun leysa Herjólf tímabundið af hólmi. 6. júní 2026 20:40 Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk. 5. júní 2026 08:33 Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira
„Þetta er bara alveg svívirðilegt“ „Það er allt í uppnámi af því hann [Baldur] er farinn,“ segir Björn Samúelsson, húseigandi í Flatey á Breiðafirði og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann skipulagði í dag þögul mótmæli við „svívirðilegri“ ákvörðun innviðaráðherra, sem ákvað nær fyrirvaralaust að senda Breiðafjarðarferjuna Baldur til Vestmannaeyja, þar sem hún mun leysa Herjólf tímabundið af hólmi. 6. júní 2026 20:40
Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk. 5. júní 2026 08:33