Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. júní 2026 20:41 Barði við veiðar. Skipið bar áður nafnið Börkur. Síldarvinnslan Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips Síldarvinnslunnar, út fyrir ströndum Færeyja í dag og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt björgunarskip kom til bjargar. Færeyska björgunarmiðstöðin í Þórshöfn staðfestir í samtali við Vísi að þeim hafi borist neyðarkall frá Barða skömmu fyrir klukkan þrjú í dag. Þá hafði, samkvæmt heimildum fréttastofu, orðið sprenging í vélarrúmi bátsins og mikill eldur kviknaði. Skipið var þá statt um 15 sjómílum norðan af Færeyjum. Björgunarskipin Brimil og Vón av Eiði voru send til aðstoðar en upp úr klukkan þrjú bárust boð um að áhöfninni hefði tekist að slökkva eldinn og að allir væru heilir á húfi um borð. Brimil er með Barð í eftirdragi og áætlað er að þau komi til hafnar í Þórshöfn í fyrramálið. Íslensku landhelgisgæslunni hefur verið gert viðvart. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segist ekki hafa vit á því hversu mikið tjón hafi hlotist af eldinum. Það verði að koma í ljós um helgina. „Aðalmálið er að áhöfnin hafi bjargast. Menn eru þjálfaðir og kunna að bregðast við,“ segir hann.
Færeyska björgunarmiðstöðin í Þórshöfn staðfestir í samtali við Vísi að þeim hafi borist neyðarkall frá Barða skömmu fyrir klukkan þrjú í dag. Þá hafði, samkvæmt heimildum fréttastofu, orðið sprenging í vélarrúmi bátsins og mikill eldur kviknaði. Skipið var þá statt um 15 sjómílum norðan af Færeyjum. Björgunarskipin Brimil og Vón av Eiði voru send til aðstoðar en upp úr klukkan þrjú bárust boð um að áhöfninni hefði tekist að slökkva eldinn og að allir væru heilir á húfi um borð. Brimil er með Barð í eftirdragi og áætlað er að þau komi til hafnar í Þórshöfn í fyrramálið. Íslensku landhelgisgæslunni hefur verið gert viðvart. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segist ekki hafa vit á því hversu mikið tjón hafi hlotist af eldinum. Það verði að koma í ljós um helgina. „Aðalmálið er að áhöfnin hafi bjargast. Menn eru þjálfaðir og kunna að bregðast við,“ segir hann. Þekkir þú einhvern í áhöfninni sem vill segja frá upplifun sinni eða sem á myndefni af hetjudáðunum? Þú getur haft samband á ritstjorn@visir.is.
Þekkir þú einhvern í áhöfninni sem vill segja frá upplifun sinni eða sem á myndefni af hetjudáðunum? Þú getur haft samband á ritstjorn@visir.is.
Síldarvinnslan Landhelgisgæslan Sjávarútvegur Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira