Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. júní 2026 09:54 Barry Keoghan er 33 ára og hefur starfað við leiklist síðan hann var átján. Getty Írski leikarinn Barry Keoghan hefur fundið ástina á ný eftir að hafa gengið í gegnum opinber og erfið sambandsslit við poppstjörnuna Sabrinu Carpenter árið 2024. Sú nýja er snyrtifræðingur frá Staffordshire.
Breska götupressan greinir frá nýju kærustu Keoghan en fyrr í mánuðinum náðust myndir af Keoghan kyssa dularfulla ljóshærða konu í Barcelona. Nú hefur komið í ljós að konan sem um ræðir er snyrtifræðingurinn Danica Hall, kölluð Neeka, sem kynntist Keoghan gegnum fegrunarklíníkina sem hún vinnur hjá á Harley-stræti í Lundúnum. Daily Mail hefur eftir heimildarmönnum að parið hafi verið saman í nokkrar vikur og að Keoghan sé ánægður með ást fjarri sviðsljósinu eftir að hafa brennt sig á sambandi við súperstjörnuna Sabrinu Carpenter. Svo virðist sem Danica hafi eytt út öllum samfélagsmiðlum sínum, hvort sem það er vegna sambandsins eða ekki. Heimildamaður The Sun segir að Hall minni Keoghan á barnsmóður hans, tannlækninn Alyson Kierans, sem hann var í sambandi með frá 2021 til 2023 og á þriggja ára son með. Sambandið er fyrsta opinbera sambandið sem Keoghan hefur verið í síðan hann hætti með Carpenter en í kjölfar sambandsslitanna mátti hann þola gríðarlegt netníð og ásakanir um framhjáhald. Sögusagnir gengu um að hann hefði haldið framhjá poppstjörnunni með áhrifavaldinum Breckie Hill en bæði hún og Keoghan tóku fyrir það. Keoghan opnaði sig nýverið um áhrifinn sem fúkyrðaflaumurinn á netinu hefur haft á hann. Sagðist hann hafa íhugað að hætta í leiklist vegna áreitisins og hann væri hættur að fara út úr húsi vegna níðsins sem er skrifað um hann á samfélagsmiðlum. Keoghan vakti fyrst athygli þegar hann lék í Dunkirk (2017) eftir Christopher Nolan og The Killing of a Sacred Deer (2017) eftir Yorgos Lanthimos. Hann hlaut síðan BAFTA-verðlaun fyrir leik sinn í The Banshees of Inisherin (2022) og sprakk út á heimsvísu í Saltburn (2023) eftir Emerald Fennell.
Ástin og lífið Írland Hollywood Bretland Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira