Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. júní 2026 11:44 Gerður Björk Sveinsdóttir sveitarstjóri Vesturbyggðar er ósammála túlkun Vegagerðarinnar. Vísir/Samsett Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi.
Ferðaþjónustuaðilar og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og á Breiðafjarðareyjum hafa viðrað óánægju sína með að Breiðafjarðarferjan Baldur verði tekin úr Breiðafirði og látin sigla til Vestmannaeyja samhliða Herjólfi sem siglir nú á hálfum krafti vegna bilunar í annarri tveggja véla skipsins. Gistiheimilarekendur á sunnanverðum Vestfjörðum lýstu erfiðu ástandi vegna óvissu með Breiðafjarðarsiglingar. Hótelrekendur í Breiðuvík, á Patreksfirði og Tálknafirði lýstu því að afbókunum rigndi inn og að ferðaþjónustan yrði af miklum tekjum. Heimild til að ráðstafa Baldri til annarra siglinga er tilgreind í samningi við Vegagerðina. Þar kemur fram að heimilt sé að ráðstafa ferjunni í önnur verkefni á samningstímanum „meðal annars ef Herjólfur fer í slipp en einnig ef Herjólfur verður óstarfhæfur um einhvern tíma“. Hversu langt nær „meðal annars“? Deilt er um það hve víðtækt þetta „meðal annars“ er en G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir félagið miða við að þetta orðalag nái yfir það að Herjólfur sé á hálfum krafti en Gerður Björk Sveinsdóttir sveitarstjóri Vesturbyggðar er efins. „Baldur er skilgreint sem varaskip fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp. Hann er hvorugt. Þannig að við áttum okkur ekki á því hvaða heimild er til þess að ráðstafa Baldri til siglinga til Eyja samhliða Herjólfi,“ segir hún. „Það er fullt af fyrirtækjum, einstaklingum, íbúum í Flatey sem stól á Baldur. Þegar honum er kippt svona út þá hefur það rosalega mikil áhrif. Það hefur áhrif á ferðaplön fólks, á ferðaþjónustu aðila á sunnanverðum Vestfjörðum sem reka fyrirtæki í ofsalega stuttum glugga sem ferðamannatímabilið er á þessu svæði. Þetta hefur áhrif á rekstraraðila sem senda aðföng til Flateyjar. Þetta hefur áhrif á alla,“ segir Gerður. Á fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn bókaði hún kröfu sína þess efnis að Vegagerðin falli frá ákvörðun sinni um ráðstöfun Baldurs til annarra verkefna.
Ferjan Baldur Vesturbyggð Samgöngumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira