Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Agnar Már Másson skrifar 10. júní 2026 13:03 Kjötborð í íslenskri matvöruverslun. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.
Samkeppniseftirlitið sendi í dag út fréttatilkynningu og svokallað umræðuskjal sem er sagt liður í víðtækari athugun á dagvörumarkaði. Ljósi er þar varpað á dagvöruverð á Íslandi og verðþróun í samanburði við önnur Evrópulönd. Samkeppniseftirlitið gefur þá fyrirtækjum á dagvörumarkaði og öðrum áhugasömum kost á að setja fram sjónarmið varðandi efni umræðuskjalsins og hafa þau frest til 30. júní. Bent er á í skjali Samkeppniseftirlitsins að verð á matvöru á Íslandi sé meðal þess hæsta í Evrópu. Íslendingar greiði að meðaltali 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Aðeins í Sviss sé matvara dýrari, eða 58 prósentum yfir meðaltali ESB-landa. Í Noregi sé vöruverð 32 prósentum yfir meðaltali, en verð í Svíþjóð og Finnlandi sé einungis 6 prósentum yfir meðaltalinu. Hækkanir mestar á Íslandi Þá sýnir greining Samkeppniseftirlitsins að frá árinu 2020 hafi mestar hækkanir á dagvörumarkaði orðið hér á landi, samanborið við nágrannalönd. Þannig hafi matvöruverð á Íslandi hækkað um 46 prósent, samanborið við 37 prósenta verðhækkun í ESB-löndunum. Sviss sé þó undantekning í samanburðinum, þar sem matvöruverð hafi aðeins hækkað um 3 prósent á sama tímabili, en 32 prósent í Noregi, 22 prósent í Finnlandi og 25 prósent á Írlandi. Samkeppniseftirlitið segir enn fremur að af einstökum flokkum matvöru séu hérlendar mjólkurvörur dýrastar í Evrópu, eða rúmlega 90 prósentum yfir meðaltali ESB-landa. Næstar koma kjötvörur, sem eru um 75 prósentum yfir meðaltalinu. Telja búvörulögin valda hækkun umfram því sem sést í öðrum löndum Verð á kjöti hér á landi hefur hækkað mest af öllum vöruflokkum frá árinu 2020, eða um 67 prósent að sögn Samkeppniseftirlitsins. Í Noregi hafi verð á mjólkurvörum hækkað tæplega helmingi minna á sama tímabili og verð á kjöti um þriðjungi minna. Samkeppniseftirlitið segir að hátt verð og miklar hækkanir á kjöti og mjólk í samanburði við nágrannalönd skýrist m.a. af því að „á Íslandi sé afurðastöðvum heimilað að sameinast án þess að samkeppnisyfirvöld geti stöðvað samkeppnishamlandi samruna“. SKE Vert er að taka fram að hér er Samkeppniseftirlitið að vísa til lagabreytinga á búvörulögum sem tóku gildi árið 2024 og geta þau varla skýrt verðhækkanir sem komu til fyrir þær breytingar. Þessum breytingum hefur núverandi ríkisstjórn ætlað sér að snúa við að miklu leyti en þær urðu meðal annars til þess að Kaupfélag Skagfirðinga gat fest kaup á Kjarnafæði-Norðlenska og þannig sameinuðust tvær af stærstu kjötafurðunarstöðvum landsins án viðkomu í samkeppniseftirlitinu. Árið síðar festu félögin svo kaup á sláturhúsi, kjötvinnslu og verslun B. Jensen, aftur án viðkomu hjá Samkeppniseftirlitinu. Aftur á móti kemur fram í skjali eftirlitsins að fram til ársins 2023 hafi hækkandi verð á kjöti haldist í hendur við hækkandi verð í Evrópu en síðan hækkað umfram það eftir að búvörulögin voru samþykkt. „Aukin samþjöppun og undanþágur frá samkeppnislögum eru líklegustu skýringarnar,“ skrifar eftirlitið í umræðuskjalið. Samkeppniseftirlitið tekur fram að afurðastöðvum sé heimilað að hafa með sér samráð, án tillits til þess hvort þær séu í eigu eða undir stjórn bænda. Alls staðar annars staðar í Evrópu sé samkeppnisyfirvöldum ætlað að vernda hagsmuni neytenda og bænda að þessu leyti. Hátt matvöruverð mikið áhyggjuefni Nú stendur yfir gagnaöflun hjá SKE sem er sögð miða m.a. að því að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem áhrif hafa á dagvöruverð hér á landi. Að lokum tekur Samkeppniseftirlitið fram að stór hluti heildarútgjalda íslenskra heimila fari í matarinnkaup og því sé hið háa matvöruverð hér á landi mikið áhyggjuefni. Kallar Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum um efni umræðuskjalsins og ábendingum um samkeppnishindranir. Slíkar mögulegar samkeppnishindranir geta t.d. varðað hvers konar óeðlilegar hindranir við innflutning, framleiðslu, heildsölu og smásölu á matvöru.
Samkeppnismál Evrópusambandið Matvælaframleiðsla Undanþága kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum Búvörusamningar Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Sjá meira