Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Kjartan Kjartansson skrifar 9. júní 2026 15:53 Ulf Kristersson (f.m.) á vappi með séra Birgittu Ed, spúsu hans (t.h.) og hundi (t.v.). Samtök sem systir Ed er í forsvari fyrir hafa fengið stóraukin framlög frá sænska ríkinu undanfarið. Vísir/EPA Öll spjót standa nú á Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vegna ætlaðra hagsmunaárekstra, frændhygli og spillingar. Málin tengjast meðal annars samtökum eiginkonu Kristersson og systur hennar.
Kaupahéðnar og áhrifamenn eru sagðir hafa getað fengið greiðan aðgang að Kristersson með því að bjóða sig fram til sjálfboðaliðastarfa fyrir Fållökna-sjóðinn, samtök á vegum Birgittu Ed, eiginkonu forsætisráðherrans. Dæmi eru sögð um að fyrrum sjálfboðaliðar hafi í kjölfarið verið skipaðir í áhrifastöður í ríkisstjórn Kristersson. Þá er losarabragur sagður á öryggismálum. Þannig þurfti blaðamaður Aftonbladet aðeins að lýsa yfir áhuga sínum á að vinna fyrir sjóðinn til þess að komast í návígi við Kristersson sjálfan. Í síðasta mánuði töldu sænskir stjórnsýslufræðingar svo Kristersson hefði átt í skýrum hagsmunaárekstri þegar stóraukin framlög til samtaka mágkonu hans voru samþykkt. Ríkisstjórn Kristersson samþykkti að nærri því tvöfalda framlag til Teach for Sweden, félagasamtaka sem mennta kennara, á fundi sem forsætisráðherrann sat í apríl, að sögn sænskra fjölmiðla. Marita Bildt, systir Birgittu Ed, hefur setið í stjórn Teach for Sweden frá 2021. Síðan þá hafa ríkisframlög til samtakanna rúmlega tvöfaldast. Ekki persónulega inn í hverju smáatriði Teach for Sweden hafði þegar verið eyrnamerktar fimmtán milljónir sænskra króna en í fjáraukalögum sem ríkisstjórnin samþykkti voru tólf milljónum bætt við. Í heildina fengu samtökin því jafnvirði rúmra 357 milljóna íslenskra króna frá ríkisstjórn Kristersson. Talskona Kristersson sagði framlög til samtakanna hafa farið í gegnum hefðbundið ferli við fjárlagagerð. Forsætisráðherrann hefði ekki verið persónulega inn í fjárlagagerðinni í svo miklum smáatriðum. Olle Lundin, prófessor í stjórnsýslulögum, sagði við sænska ríkisútvarpið að hann teldi þetta nokkuð skýran hagsmunaárekstur hjá forsætisráðherranum. „Mitt mat er að hann sé vanhæfur. Hann hefði ekki átt að vera á þessum fundi,“ sagði Lundin. Bagalegt um þremur mánuðum fyrir kosningar Bæði mál eru þau bagalegustu fyrir Kristersson enda aðeins rúmir þrír mánuðir til þingkosninga. Moderata-flokkur hans hefur mælst með tæplega fimmtungsfylgi í skoðanakönnunum, nokkru minni en jaðarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar. Svíþjóðardemókratar hafa stutt minnihlutastjórn Kristersson. Hann boðaði fyrr á þessu ári að hann tæki þá með sér í ríkisstjórn ef hann fengi til þess umboð í þingkosningunum í haust. Jafnaðarmenn mælast með mest fylgi í könnunum, í kringum þriðjung.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira