Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar 7. júní 2026 12:30 Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu – Seinni hluti Andrúmsloftið inni í yfirheyrsluherberginu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu er þykkt. Það er hægt að skera það með hníf. Hér inni ríkir enginn kærleikur, heldur hrein og tæpulaus fyrirlitning báðum megin við borðið. Þetta er saga af tveimur hliðum á sama samfélaginu, hliðum sem eiga enga samleið, en eru læstar í eilífum dansi afbrota, vanrækslu og refsinga. Ísköld taktík og gamlir eikardrumbar Lögreglumaðurinn sem stýrir yfirheyrslunni er kominn á sjötugsaldurinn, sterklega byggður eins og gamall eikardrumbur eftir fjóra áratugi í eldlínunni. Hárið er grátt og vatnsgreitt út á hlið, skyrtuermarnar uppbrettar og bindið laust. Eftir fimmtán ár á rannsóknardeildinni hefur hann séð og heyrt allt. Hann er þreyttur. Hann þráir ekkert heitara en að sleppa úr „borg óttans“, komast upp úr þessum drullupolli sem hann hrærist í alla daga nú á síðasta ári starfsævi sinnar. Hann telur nú orðið sekúndurnar að fá að fara í kyrrðina í sumarbústaðnum. En í dag gefur hann engin grið. Hann setur upp hið þekktasta vopn sitt: sálfræðihernað þagnarinnar og ískalda, leikræna kaldhæðni sem minnir á Robert De Niro í hlutverki Al Capone í bíómyndinni The Untouchables. Andspænis honum situr fólkið úr lokuðum heimi undirmálsfólksins, kerfissérfræðingar í bótakerfinu þar sem heimilisofbeldi og síbrot eru í fastri áskrift, sem er bölvaður arfur sem smitast á milli kynslóða. Innsent Skari: Forhert glottið og mölvaðar minningar Fyrstur í stólinn er Óskar Þórður, sem neitar að heyra annað nafn en Skari. Hann situr glottandi, lyftir stólnum á tvo fætur og hringlar með tungulokkinn og snýr pinnanum í augnbrúninni. Þegar lögreglumaðurinn bað hann með hvössum tón að taka niður húfuna svaraði hann með eintómum stælum og algjöru virðingarleysi. „Er einhver dress standard í yfirheyrslum í dag?“ hreytti hann út úr sér við lögreglumanninn. Þarna snöggfauk í eikardrumbinn. Hann barði hnefanum fast í borðið svo heftarinn hoppaði og þrumaði yfir herbergið og það svo hátt að tónninn múraði aðra umferð á alla fjóra veggina í yfirheyrsluherberginu með fyllingu raddarinnar: „Þú ferð að þeim kröfum og reglum sem ég set hérna inni, er þér það ljóst, Óskar Þórður! Ég leyfi engin höfuðföt, það eru almennir mannasiðir hafðir í heiðri hérna inni!“ Spennan verður rafmögnuð þegar lögmaður Skara, sem mætti of seint, úfinn og eins og nývaknaður af skrifstofusófa, reynir að létta á andrúmsloftinu. Hann fær fljótt að kenna á því og lögreglumaðurinn setur hann rækilega á plássið sitt með ísköldu drápsaugnaráði. Leiknum lýkur þegar lögreglumaðurinn dregur fram sönnunargögnin: ljósmyndir af Skara og félaga hans, Ómari, við svalahurð í Seljahverfi fyrr um daginn. En það er önnur mynd sem breytir öllu. Mynd sem strákarnir stálu af heimili fórnarlambsins, heimili sem þeir mölvuðu niður þannig að allt var í rúst. Mynd af látnum syni húsráðenda. „Hvar er myndin, Skari?“ spyr lögmaðurinn, sem sjálfum er misboðið. Skari dregur samankrumpaða myndina úr vasanum og slengir henni á borðið. Móðir hans hreyfir hvorki legg né lið. Hún situr í tæpulausu tómlæti og skoðar á sér neglurnar. Veröld hennar rúmast algjörlega utan um bótatékka og næstu sígarettu. Nonni: Spegilmynd af glötuðu barni Næstur er Jón, kallaður Nonni. Hér breytist andrúmsloftið. Nonni situr stjarfur af skelfingu, hnúarnir hvítir á stólsetunni og hakan niðri í bringu. Mamma hans situr við hliðina á honum, gjörsamlega niðurbrotin af skömm. Hér sé ég sjálfan mig. Ég var olnbogabarn sjálfur, strákur sem kerfið týndi í fangi námsörðugleika. Nonni er ekki hrottinn í sögunni; hann var bara peð, auðveld bráð sem Skari og Ómar notuðu til að standa vörð og átti að blístra ef einhver kæmi. Í þessu starfi hefur maður heyrt það svo oft: „Ég kýldi hann bara en ég ætlaði ekki að brjóta á honum nefið.“ Þessir krakkar gera sér nefnilega enga grein fyrir afleiðingum ofbeldis. Þau sjá ekki lengra en út fyrir eigin hnúfa í augnablikinu, átta sig ekki á að eitt högg getur rústað lífi annars manns og þeirra eigin í leiðinni. Lögreglumaðurinn skiptir um ham. Rómurinn verður mýkri, nánast eins og hann sé að tala við barn sem týndist í skógi. Þegar Nonni sér myndirnar af eyðileggingunni og heyrir harmsöguna á bak við myndina af látna stráknum brestur hann endanlega saman. Þetta er ekki grátur glæpamanns sem óttast fangelsi, heldur sár grátur barns sem áttar sig á afleiðingum gjörða sinna. Ómar: Tilfinningalegt frost Sid Vicious Síðastur er Ómar Freyr. Hann er grannur, náfölur, saggandi í Levi's-buxum þar sem hann gengur á slitnum skálmunum. Hann er tilfinningalega dauður. Útlitslega og í félagsfærni á hann samleið með Sid Vicious í Sex Pistols; honum er nákvæmlega sléttskítsama um allt og alla. Eina þrá hans er að svífa í eigin vímuskýi og fá að hverfa frá grámyglaða hversdagsleikanum. Hann situr þarna í hermannafelulituðum anórakka og með bómullarhettupeysu innan undir, með hettuna dregna djúpt yfir höfuðið og svarta húfu dregna alveg niður að augnabrúnum til að gera tilraun til að fela sig frá raunveruleikanum í dagsbirtunni. Móðir hans situr í horninu eins og hrædd mús. Hún er pilluæta, vofa hverfisins og skugginn sem allir vita af en enginn vill sjá. Strákurinn stjórnar henni með augnaráðinu einu saman. „Hvað ert þú að bulla, þú veist ekkert!“ urrar hann ef hún reynir að tala. Ómar svarar öllu með sama freðna tóninum og hunsar spurningar lögreglunnar: „No comment.“ Hann neitar að lesa skýrsluna, krotar undir hana af algjöru skeytingarleysi, stendur upp og kjagar út með breiðum mörgæsagangi þeirri sérstöku tækni sem þurfti til að halda buxunum uppi, enda héngu þær á miðjum rassi. Húfan, hettan og anórakkurinn voru hluti af hans harða hylki, en þarna fyrir innan var ekkert annað en tær vanmáttur drengs sem hafði tapað alla tíð, þekkti ekkert annað og var að taka „one-way ticket“ á Litla-Hrauni. Síbrotaáskriftin Úti í anddyri mætast þeir aftur, Skari og Ómar. Þeir mætast án orða, eitt skilningsríkt augnatillit á milli tveggja „hrotta“ sem fyrirlíta kerfið jafnt. Þeir ganga út í snjófjúkið á Hverfisgötu og kveikja sér í sígarettu með skjálfandi höndum. Ég veit nákvæmlega hvert þeir stefndu. Þeir voru með tvö grömm af svörtu falið á sér og yrðu komnir á ský vímunnar löngu áður en þeir næðu fyrir næsta horn. Þar myndi raunveruleikinn hverfa: Yfirheyrslan, mölvaðar minningar fólksins í Breiðholtinu og vanmáttur mæðra þeirra. Á morgun mæti ég þeim aftur í sama drullupollinum, þeim eina stað þar sem þessari síbrotaáskrift er aldrei sagt upp. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Tengdar fréttir Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Klukkan var korter yfir fimm og suðaustan rokið reif í bílhurðina á Hverfisgötunni þegar ég ætlaði að stíga út. 6. júní 2026 16:31 Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Sjá meira
Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Klukkan var korter yfir fimm og suðaustan rokið reif í bílhurðina á Hverfisgötunni þegar ég ætlaði að stíga út. 6. júní 2026 16:31
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun