Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júní 2026 09:18 Vilhjálmur ætlar að segja af sér þingmennsku eftir helgi, líklega á mánudag. Vísir/Bjarni Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lætur að öllum líkindum af þingmennsku á mánudag sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann tók við sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ í vikunni en hefur setið á þingi frá árinu 2013.
Fram kom í viðtali við Vilhjálm í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hann taki við sömu launakjörum og forveri hans í starfi en dragi frá þeim launum laun bæjarfulltrúa því hann er kjörinn ólíkt fyrri bæjarstjóra. Bæjarstjóralaun hans séu um 2,6 milljónir og svo fái hann greiddar um 240 þúsund krónur sem kjörinn fulltrúi. Samanlagt er það því um 2,84 milljónir króna. Vilhjálmur segir að það hafi verið skýrt frá upphafi að hann myndi láta af þingmennsku yrði hann bæjarstjóri. Það geri hann á næstu dögum og þessi vistaskipti kosti ríkissjóð ekki krónu. Töluvert hefur síðustu daga verið rætt um stöðu hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur sem lét einnig af þingmennsku í vikunni. Ráðningarsamningur hans hafi verið tekinn fyrir í bæjarráði í gær og eftir helgina, þegar hann er búinn að ganga frá lausum endum á þinginu, muni hann segja af sér þingmennsku. Hann sagðist hafa haldið sína síðustu ræðu í gær í púlti um samgöngumál. „Svo bara núna eftir helgina geri ég það sem ég er búinn að segja frá upphafi, að ég myndi láta af þingmennsku yrði ég bæjarstjóri,“ segir Vilhjálmur en rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hættir líklega á mánudaginn Hann segir ekki nákvæma dagsetningu komna en það verði líklega á mánudaginn. Spurður um biðlaun segir Vilhjálmur líklega um „eina hagkvæmustu uppsögn“ þegar einhver lætur af þingmennsku. Hann sé kominn með annað starf og fái önnur laun. Vilhjálmur segir lög og reglur í gildi um biðlaun þingmanna og kjör þeirra. Þau séu eins og aðrir ráðningarsamningar. „Þingmenn eru bara launafólk eins og annað fólk sem þarf að hafa lífsviðurværi þegar það hættir störfum,“ segir hann en að einnig sé tiltekið að þegar þingmenn fái annað starf fái þeir ekki lengur biðlaun. Það sama gildi ekki víða á vinnumarkaði um til dæmis starfslokasamninga þar sem fólk fái lokagreiðslu greidda burtséð frá því hvort það fái svo aðra vinnu. Allir á biðlaunum sem hætta á þingi „Það er ekki þannig hjá þingmönnum,“ segir hann og að hann telji eðlilegt að lögin séu svona og reglurnar um laun þingmanna. Hann bendir á að allir þingmenn sem láta af þingmennsku í kosningum séu á biðlaunum og margir séu nokkurn tíma að finna sér aðra vinnu. „Þegar ég hætti sjálfur og fer í annað starf kostar það ríkissjóð ekki krónu.“ Spurður hvort hann telji umræðuna ósanngjarna segir hann hana fylgja starfinu og hann geri ekki athugasemdir við hana. Það pæli allir í sínum kjörum og hann skilji að fólk pæli í þessu. „Sá sex mánaða biðlaunaréttur sem ég hef áunnið mér fellur niður núna og kostar ríkissjóð ekki krónu.“ Meirihlutinn einhuga Vilhjálmur segir að sín fyrstu verk sem bæjarstjóri hafi verið að kynnast praktískum atriðum, funda með sviðsstjórum og kynnast starfsfólki. „Það eru mörg mál að setja sig inn í,“ segir hann og að hann þurfi að halda hjólunum gangandi. Hann hafi þurft að setja sig hratt inn í ýmis mál til að halda hlutunum gangandi. Vilhjálmur segir meirihlutann einhuga um þau verkefni sem hann ætlar að vinna að á kjörtímabilinu og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ hafi keyrt á svipuðu konsepti og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík þar sem verkefni voru tímasett. Meirihlutinn vinni að þeim verkefnum sem voru kynnt í baráttunni og einhverjum fleirum. „Við köllum þetta hundrað daga plan,“ segir hann og að þar sé fókus á íþrótta- og skipulagsmál og að fegra bæinn. Hægt er að hlusta á viðtalið við Vilhjálm hér að ofan sem fór betur yfir sín helstu áherslumál og meirihlutans.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjanesbær Alþingi Kjaramál Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Hátt á þriðju milljón á mánuði Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr bæjarstjóri hefur gert ráðningarsamning við Akureyrarbæ. Föst dagvinnulaun eru rúmlega 1,8 milljónir króna en við það bætist 45% stjórnendaálag. Alls nema launin rúmum 2,6 milljónum króna. 4. júní 2026 15:32 Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Sjá meira
Hátt á þriðju milljón á mánuði Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr bæjarstjóri hefur gert ráðningarsamning við Akureyrarbæ. Föst dagvinnulaun eru rúmlega 1,8 milljónir króna en við það bætist 45% stjórnendaálag. Alls nema launin rúmum 2,6 milljónum króna. 4. júní 2026 15:32