Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júní 2026 14:15 Af færslum og ummælum á samfélagsmiðlum að dæma voru margir sem ráku upp stór augu í gær þegar röng verð voru merkt á hillur ýmissa verslana. Aðsend/Samkaup Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau.
Vífill Ingimarsson framkvæmdastjóri Nettó, Kjörbúðarinnar og Prís segir kerfisvilluna hafa komið upp við uppfærslu á tölvukerfi sem stýrir hilluverðmerkingum og að hún hafi haft áhrif á allar verslanir Samkaupa. Þá segir hann í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að villan hafi birst þannig að röng verð hafi birst á hilluverðmerkingum í verslunum Samkaupa en að „villan hafi eingöngu haft áhrif á hilluverðmerkingar en engin áhrif á verð á afgreiðslukössum, þar hafi verðin áfram verið rétt“. Aðsend Þá voru lítraflöskur af Coca Cola án sykurs verðmerktar á ríflega tvö þúsund og sjö hundruð krónur og Mills-kavíar í túbur á rétt rúmar fjögur þúsund og þrjú hundruð krónur. Vífill segir í svarinu að þau hafi orðið vör við villuna snemma morguns og að þá hafi „allt kapp verið lagt á að lagfæra hana og keyra inn nýja uppfærslu sem hafi tekið nokkrar klukkustundir að skila sér í allar verslanirnar,“ segir hann en tekur fram að einnig hafi verið settar fram merkingar í allar búðir til þess að láta viðskiptavini vita af villunni. „Starfsfólk í verslununum okkar reyndi eftir fremsta megni aðstoða viðskiptavini á meðan merkingar voru rangar,“ segir Vífill í svarinu og nýtir tækifærið til að biðja viðskiptavini afsökunar. „Við viljum nota tækifærið til að biðja okkar viðskiptavini afsökunar á þessu og þakka þeim fyrir skilninginn. Eins og í öllum okkar verkferlum förum við vel yfir hvað olli þessu til að reyna að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig.“
Verðlag Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira