Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kristján Már Unnarsson skrifar 3. júní 2026 15:45 Fyrsta Airbus-þota Icelandair flaug yfir Reykjavíkurflugvöll í sínu fyrsta heimflugi til Íslands þann 3. desember 2024. Samgöngustofa segir flugvélina skilgreinda sem 4C loftfar. Uppgefinn kóði Reykjavíkurflugvallar sé lægri, eða 3C. Matthías Sveinbjörnsson Sérstakt mat þarf að fara fram á því hvort Reykjavíkurflugvöllur uppfylli kröfur til að nýjar Airbus A321-þotur Icelandair geti nýtt hann sem varaflugvöll. Ástæðan er sú að Airbus-þotan er skilgreind sem 4C loftfar meðan viðmiðunarkóði flugvallarins er lægri eða 3C. Þetta þarf þó að mati Icelandair-manna ekki að hindra að Airbus A321 fái leyfi til að nota flugvöllinn þar sem þetta séu viðmiðunarkóðar en ekki rekstrartakmörkun fyrir loftför.
Þannig hafa viðmiðunarkóðarnir ekki komið í veg fyrir að Boeing 757 og Boeing 737 max-þotur Icelandair nýti Reykjavíkurflugvöll. 757-þotan er með kóða 4D en er með sérstaka undanþágu til að nota flugvöllinn. 737 max-þotan er með tvær skilgreiningar eftir þyngd, 3C og 4C. Fimm þotur Icelandair nýttu Reykjavíkurflugvöll sem varaflugvöll þann 26. febrúar síðastliðinn þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist skyndilega vegna hríðarbyls. Þetta voru fjórar Boeing 737 max og ein Boeing 757. Airbus A321-vélar Icelandair máttu ekki lenda á flugvellinum.Vilhelm Samgöngustofa skýrir þann tíma, sem tekið hefur að afgreiða ósk um að Airbus-þotur Icelandair geti nýtt Reykjavíkurflugvöll, með því að tæknilegar upplýsingar og gögn, sem óskað hafi verið eftir frá Isavia innanlandsflugvöllum stuttu eftir að umsókn barst, hafi ekki enn borist. Því liggi ekki fyrir fullnægjandi grundvöllur til að staðfesta að notkun flugvélarinnar samræmist þeim rekstrar- og öryggisforsendum sem gilda fyrir flugvöllinn. Í frétt Sýnar í síðustu viku kom fram í viðtali við Ásgeir Gunnar Stefánsson, aðstoðaryfirflugstjóra Icelandair, að félagið hafi í hartnær tvö ár verið í samtali við bæði Reykjavíkurflugvöll og Samgöngustofu um það að bæta Airbus A321 inn á starfsleyfi vallarins, eins og heyra má hér: Í skriflegu svari Samgöngustofu til fréttastofu kemur fram hún hafi átt samtal við rekstraraðila flugvallarins, Isavia innanlandsflugvellli, vegna málsins. Stuttu eftir að umsókn barst hafi Samgöngustofa óskað eftir frekari gögnum og tæknilegum upplýsingum sem nauðsynlegar séu til að hægt sé að leggja fullnægjandi mat á málið. Samgöngustofa segir að rekstraraðili flugvallarins beri ábyrgð á mati á burðargetu flugvallarmannvirkja, þar á meðal flugbrauta, akbrauta og flughlaða, ásamt því að skilgreina þau rekstrarskilyrði sem gildi á flugvellinum. Hlutverk Samgöngustofu sé eftirlitshlutverk og felist meðal annars í því að staðfesta að rekstur flugvallar og fyrirhugaðar breytingar séu í samræmi við gildandi reglur og öryggiskröfur. „Þótt flugbrautir geti uppfyllt ákveðin skilyrði getur verið að önnur mannvirki, svo sem flughlöð eða akbrautir, krefjist frekara mats eða úrbóta áður en heimildir eru veittar,“ segir Samgöngustofa. Airbus A321-þota WOW-air á Reykjavíkurflugvelli árið 2015. Þegar fréttastofa spurði hvað það væri við Reykjavíkurflugvöll og Airbus A321 sem hamlaði því að flugvélinni væri bætt inn á starfsleyfi flugvallarins fékkst þetta svar frá Samgöngustofu: „Helstu atriði sem þarf að leggja mat á í þessu samhengi eru meðal annars lengd flugbrautar, burðargeta og styrkur slitlaga, ásamt þeirri ICAO-kóðun sem framleiðandi loftfarsins skilgreinir fyrir viðkomandi loftfar. Airbus A321 er af framleiðanda loftfarsins skilgreind sem ICAO reference code 4C loftfar. Sú flokkun byggir á stöðluðum alþjóðlegum forsendum um eiginleika loftfarsins, meðal annars vænghaf, stærð, uppbyggingu og álagsdreifingu hjólabúnaðar, auk þeirra rekstrarskilyrða sem þarf til öruggrar notkunar loftfarsins á flugvöllum. Almennt gildir að loftför eru rekin á flugvöllum sem eru hannaðir, samþykktir og birtir fyrir þann kóðaflokk sem viðkomandi loftfar fellur undir. Ef loftfar fellur undir hærri kóðun, en sá flugvöllur sem fyrirhugað er að nota, þarf sérstaklega að leggja mat á hvort mannvirki, öryggisfjarlægðir og rekstrarforsendur flugvallarins uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi. Í tilfelli Reykjavíkurflugvallar er kóðinn 3C, sem er þá lægri kóði en uppgefinn kóði frá framleiðanda Airbus A321,“ segir Samgöngustofa. Airbus A321-þota Play í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli árið 2023.Egill Aðalsteinsson Stofnunin segir að við matið sé meðal annars stuðst við kerfi þar sem tekið sé mið af áhrifum loftfars á flugbrautir, akbrautir og flughlað. Áhrif á slitlag ráðist ekki eingöngu af heildarþyngd loftfars heldur einnig af dreifingu álags, lendingarbúnaði og tíðni notkunar. „Tilgangurinn með þessum reglum og flokkunarkerfum er að tryggja örugga og samræmda notkun loftfara. Við slíkt mat er því stuðst við formlegar tæknilegar forsendur og gögn frá framleiðanda loftfarsins, en ekki eingöngu það hvað einstakir flugmenn eða flugrekendur telja sig geta framkvæmt. Samgöngustofa hefur óskað eftir frekari tæknilegum upplýsingum og gögnum frá Isavia innanlandsflugvöllum, rekstraraðila Reykjavíkurflugvallar, sem byggja á upplýsingum frá framleiðanda loftfarsins. Þau gögn hafa ekki enn borist og því liggur ekki fyrir fullnægjandi grundvöllur til að staðfesta að fyrirhuguð starfsemi samræmist þeim rekstrar- og öryggisforsendum sem gilda fyrir flugvöllinn,“ segir Samgöngustofa. Boeing 757-þota Icelandair í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli. Þær taka 184 farþega og eru af og til fengnar til að létta á álagstoppum í innanlandsfluginu.Vilhelm Ásgeir Gunnar hjá Icelandair segir viðmiðunarkóðann fyrst og fremst hönnunar- og flokkunarviðmið. Honum sé ekki ætlað að vera sjálfstæð rekstrarkrafa eða rekstrartakmörkun fyrir loftför. „Fljótt á litið mætti álykta að það væri feigðarflan að reyna að lenda flugvél með kóðanúmeri 4 á flugbraut með 3 skilgreiningu. Svo er alls ekki,“ segir aðstoðaryfirflugstjórinn. Ásgeir Gunnar Stefánsson er aðstoðaryfirflugstjóri Icelandair.Lýður Valberg Ásgeir segir öll flugfélög í umhverfi Flugöryggisstofnunar Evrópu þurfa að reikna út hvort flugvél geti lent á varaflugvelli eða áfangastað. Miða þurfi við áætlaða þyngd og veðurspá á ætluðum komutíma með því að nota aðeins sextíu prósent af lengd flugbrautar áður en flugvöllur er skráður varaflugvöllur á flugáætlun. Þegar í loftið sé komið þurfi flugmenn að framkvæma annan útreikning miðað við raunaðstæður og raunþyngd með fimmtán prósenta öryggismörkum. Fyrri útreikningurinn sé því talsvert íhaldssamari en sá seinni. Boeing 737 max eftir lendingu á Reykjavíkurflugvelli þann 26. febrúar þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist.Vilhelm „Af því leiðir að oft væri hægt að nýta Reykjavík til lendingar þó svo að völlurinn hafi ekki verið skráður varaflugvöllur áður en flugið hófst. Þetta er mjög mikilvægur flugöryggispunktur ef eitthvað óvænt skyldi gerast sem lokar Keflavíkurflugvelli,“ segir Ásgeir Gunnar Stefánsson. Hann segir rétt að Reykjavíkurflugvöllur sé með viðmiðunarkóða 3C. Airbus A321 sé með skilgreindan viðmiðunarkóða 4C en Airbus A320 er með skilgreindan viðmiðunarkóða 3C. „Boeing 757 er með kóða 4D en er með útgefna undanþágu fyrir notkun á Reykjavík. Boeing 737 Max er í raun með tvær skilgreiningar eftir þyngd, 3C eða 4C. Í okkar tilfelli erum við ávallt langt undir 75 tonnum í flugtaki frá Reykjavík á Boeing 737 og því 3C,“ segir Ásgeir. Hér má sjá Boeing 737 max í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli:
Reykjavíkurflugvöllur Airbus Icelandair Flug Tengdar fréttir Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Icelandair hefur beðið í nærri tvö ár eftir því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að nota Reykjavík sem varavöll fyrir nýjar Airbus-þotur félagsins. Í síðustu viku neyddist félagið til að skrá Glasgow sem varavöll fyrir Airbus sem þýddi að þotan þurfti að bera fjórum tonnum meira af eldsneyti yfir hafið. 26. maí 2026 22:12 Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Þetta hafði áhrif á tvö þúsund farþega Icelandair, sem hefur nú aflýst að minnsta kosti fimm flugferðum. 26. febrúar 2026 15:35 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjá meira
Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Icelandair hefur beðið í nærri tvö ár eftir því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að nota Reykjavík sem varavöll fyrir nýjar Airbus-þotur félagsins. Í síðustu viku neyddist félagið til að skrá Glasgow sem varavöll fyrir Airbus sem þýddi að þotan þurfti að bera fjórum tonnum meira af eldsneyti yfir hafið. 26. maí 2026 22:12
Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Þetta hafði áhrif á tvö þúsund farþega Icelandair, sem hefur nú aflýst að minnsta kosti fimm flugferðum. 26. febrúar 2026 15:35