Skaðabótasjóður Trumps í hættu Samúel Karl Ólason skrifar 2. júní 2026 08:31 Frá árásinni á þinghúsið 2021. AP/Jose Luis Magana Donald Trump ætlar að hætta við stofnun sjóðs sem ætlað er að greiða fólki skaðabætur vegna meintrar vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna gegn því. Ætlanir dómsmálaráðuneytisins um stofnun sjóðsins hafa verið harðlega gagnrýndar af bæði Demókrötum og Repúblikönum og þá meðal annars á þeim grundvelli að með honum vildi Trump gefa bandamönnum sínum peninga skattgreiðenda.
Dómari meinaði ráðuneytinu á dögunum tímabundið að stofna sjóðinn og greiða úr honum á meðan leyst yrði úr dómsmálum vegna þessara ætlana. Forsvarsmenn ráðuneytisins lýstu því yfir í gær að þeir myndu fara eftir úrskurði dómarans en samkvæmt heimildum fjölmiðla vestanhafs er Trump sagður íhuga að hætta alfarið við að stofna hann. Sjóðinn átti að stofna var stofnaður í tengslum við samkomulag sem dómsmálaráðuneytið, undir stjórn Todd Blanche, fyrrverandi einkalögmanns Trumps, gerði við forsetann sjálfan vegna lögsóknar hans gegn Skattinum. Hann höfðaði mál gegn Skattinum vegna þess að skattaskýrslum hans var lekið til fjölmiðla en hann hefur um árabil neitað að birta þær, eins og forsetaframbjóðendur gera vestanhafs. Dómarinn í máli Trumps gegn Skattinum hafði krafið dómsmálaráðuneytið um útskýringu á því hvernig Trump gæti setið beggja megin við borðið í málinu. Hún benti á að lögmenn ríkisstjórnarinnar hefðu aldrei varist gegn lögsókn Trumps, þótt þeir hefðu möguleika á því. Þetta sagði hún eftir að fyrrverandi dómarar báðu hana um að skoða hvort málaferlin væru réttmæt. Nokkrum dögum síðar lýsti Blanche því yfir að áðurnefnt samkomulag hefði náðst. Meðal þeirra sem áttu að hafa möguleika á að fá greitt úr sjóðnum voru menn sem réðust á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021, með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Trump náðaði alla sem að árásinni komu en Blanche og aðrir ráðamenn höfðu neitað að útiloka að fólk sem hefði gerst sekt um að beita lögregluþjóna ofbeldi myndi fá greitt úr sjóðnum. Lögreglumenn sem voru að störfum í þinghúsinu á þessum tíma eru meðal þeirra sem hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni vegna sjóðsins. Sjá einnig: Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Blanche bætti svo óvænt ákvæði við samkomulagið um að Skattinum væri bannað að rannsaka Trump, syni hans, fyrirtæki og tengda aðila vegna gamalla skattgreiðslna. Trump mun lengi hafa verið til rannsóknar hjá Skattinum vegna gruns um að hann hafi vangreitt skatta um árabil. Sjá einnig: Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu New York Times hefur fjallað um það að Trump gæti skuldað allt að hundrað milljónir dala í vangreidda skatta, sem hann mun komast hjá því að greiða vegna samkomulagsins. Vilja skýra yfirlýsingu um sjóðinn Trump er nú sagður þeirrar skoðunar að hætta eigi við að stofna sjóðinn og á yfirlýsingin frá dómsmálaráðuneytinu í gær, um að ráðuneytið myndi fara eftir úrskurði dómara, að vera fyrsta skrefið aftur á bak, samkvæmt heimildum Wall Street Journal. Er það að miklu leyti vegna mótmæla öldungadeildarþingmanna en nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins eru sagðir hafa komið því til skila við Hvíta húsið að þeir myndu ekki taka fyrir sjötíu milljarða dala fjárveitingapakka ætluðum aðgerðum Trumps í innflytjendamálum fyrr en forsetinn gerði umfangsmiklar breytingar á sjóðnum eða hætti alfarið við að stofna hann. Öldungadeildin hefur einnig staðið í vegi fjárveitingar vegna veislusalsins sem Trump er að reisa við Hvíta húsið. Sjá einnig: Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni AP fréttaveitan segir að öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins muni funda um málið í dag og ákveða næstu skref. John Thune, leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, sagðist í gær ekki vera viss um að þeim tækist að taka áðurnefndan fjárveitingapakka til umfjöllunar í vikunni. Það ætti eftir að koma í ljós og virðist sem það velti á því hvaða ákvörðun verði tekin um sjóðinn. Fréttaveitan hefur eftir nokkrum Repúblikönum að Trump og hans fólk þurfi að lýsa því yfir berum orðum að sjóðurinn verði ekki stofnaður.
Bandaríkin Donald Trump Árás á bandaríska þinghúsið Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira