Innherji

Ís­lenskir fjár­festar verða fyrir tug­milljarða höggi við gengis­hrun Ocu­lis

Hörður Ægisson skrifar
Þetta er fyrsta stóra höggið sem Oculis verður fyrir í þróunarsögu félagsins frá því að það fór á hlutabréfamarkað árið 2023, fyrst í Bandaríkjunum og síðar á Íslandi, á genginu 10 dalir á hlut.
Þetta er fyrsta stóra höggið sem Oculis verður fyrir í þróunarsögu félagsins frá því að það fór á hlutabréfamarkað árið 2023, fyrst í Bandaríkjunum og síðar á Íslandi, á genginu 10 dalir á hlut.

Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem innlendir og erlendir fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll í kjölfarið um helming á Bandaríkjamarkaði en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni.


Tengdar fréttir

Er­lendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Ocu­lis

Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.

Bandarískir sjóðir fyrir­ferða­mestir þegar Ocu­lis kláraði 110 milljóna dala út­boð

Líftæknilyfjafélagið Oculis hefur klárað hlutafjárútboð upp á samtals um 110 milljónir Bandaríkjadala en hið nýja fjármagn kemur nánast alfarið frá erlendum fjárfestingarsjóðum. Fjármögnuninni er ætlað að hraða klínískri þróunarvinnu á einu af þróunarlyfi félagsins við bráðri sjóntaugabólgu en eftir að hafa fengið jákvæða endurgjöf frá FDA fyrr í þessum mánuði hækkuðu bandarískir greinendur verulega verðmat sitt á Oculis.

Hækka enn verðmöt sín og segja yfir­standandi ár vera „lykilár“ fyrir Oculis

Greinendur erlendra fjármálastofnana halda uppteknum hætti og hafa hækkað verðmöt sín á Oculis eftir uppgjör fjórða fjórðungs, sumir um meira en fimmtíu prósent. Yfirstandandandi ár er sagt vera „lykilár“ þegar kemur að niðurstöðum rannsókna á tveimur lyfjum og verði þær jákvæðar gæti það skilað sér í „verulegri“ hækkun á hlutabréfaverðinu.

Gildi einn stærsti hlut­hafinn í Ocu­lis með um fimm milljarða stöðu

Lífeyrissjóðurinn Gildi var í byrjun ársins í hópi allra stærstu hluthafa Oculis, með eignarhlut sem er núna verðmetinn á um fimm milljarða, en eftir að framtakssjóðurinn Brunnur afhenti nýlega alla hlutafjáreign sína til sjóðsfélaga er enginn íslenskur fjárfestir með yfir fimm prósenta hlut í augnlyfjaþróunarfyrirtækinu. Hlutabréfaverð Oculis hefur lækkað um liðlega fjórðung á undanförnum vikum en erlendir greinendur telja félagið verulega undirverðlagt og hækkuðu sumir verðmat sitt eftir ársuppgjör.

Stækkuðu út­boð Ocu­lis um helming vegna eftir­spurnar er­lendra sjóða

Áhugi sérhæfðra erlendra fjárfestingarsjóða á að fá úthlutað meira magni af bréfum í sinn hlut í hlutafjáraukningu Oculis þýddi að útboðið var stækkað talsvert frá því sem upphaflega var ráðgert þegar líftæknifélagið kláraði jafnvirði um fjórtán milljarða fjármögnun. Erlendir fjárfestar lögðu til rétt ríflega helminginn af þeim fjármunum sem Oculis sótti sér en andvirði þess verður meðal annars nýtt til að hraða klínískri þróun á mögulega byltingarkenndu lyfi sem fékk afar jákvæðar niðurstöður úr rannsóknum í byrjun ársins.

Skrán­ing Ocu­lis á Aðal­mark­að má rekja til á­hug­a frá fjár­fest­um

Skráning augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis í Kauphöll Íslands er viðbragð við áhuga frá innlendum fjárfestum og byggð á óskum hluthafa, segir framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu. Mögulega mun fyrirtækið byrja að afla tekna árið 2026. Hann segir að það sé unnið að því að auka veltu með hlutabréfin á Nasdaq. Hún hafi verið að aukast og við það verði verðmyndun vonandi betri en markaðurinn ráði verðinu þegar öllu sé á botninn hvolft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×