Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Stefán Árni Pálsson skrifar 28. maí 2026 10:00 Elvar Már er í dag leikmaður Tenerife. vísir / bjarni Elvar Már Friðriksson vonast til að skrefið til ACB liðsins Tenerife eigi eftir að opna fyrir fleiri möguleika fyrir hann á næsta tímabili. Hann er líklega ekki á heimleið.
Elvar samdi við spænska körfuboltaliðið Tenerife í síðustu viku og klárar tímabilið með liðinu. Landsliðsmaðurinn er 31 árs og vill halda áfram atvinnumennsku úti. „Þetta er svona aðallega bara tækifæri fá að stíga aðeins inn í þessa deild og sýna hvað ég get, þótt þetta sé stuttur tími, en vonandi hjálpar þetta fyrir komandi tímabil,“ segir Elvar í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. „Þetta er allavega mjög gott tækifæri til að svona fá að sýna sig aðeins í þessari deild. En ég held að það að fá þetta á ferilskrána muni alltaf hjálpa mér í sumar, hvort sem það verður þetta lið eða nýtt lið. Þannig að vonandi næ ég bara að gera það besta úr tækifærinu.“ Verður vonandi áfram úti Elvar gerir ekki ráð fyrir að koma heim í Bónusdeildina eftir sumarið. „Aldrei að segja aldrei, en ég ætla allavega að halda þeim möguleika opnum fyrst að vera hérna úti. Ég er að fá svakalegan pall til að sýna mig. Ég býst við, ef ég geri vel, að geta fengið einhver tilboð í sumar og svo ætla ég bara að skoða og sjá til.“ Íslenska landsliðið leikur gríðarlega mikilvæga landsleiki í júlí, gegn Ítölum heima 2. júlí og síðan Bretum úti 5. júlí. Ef vel fer kemst Ísland í næsta stig undankeppni HM sem fram fer í Katar á næsta ári. „Ég átti að byrja að æfa með landsliðinu 20. júní þannig að ég náði einhverri tíu daga pásu. Ég hélt að ég væri kominn í gott sumarfrí en núna mæti ég bara á flugi inn á landsliðsæfingar.“
Spænski körfuboltinn Körfubolti Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira