Þrír af hverjum fjórum Íslendingum styðja dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar 27. maí 2026 08:00 Ný könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Lífsvirðingu dagana 16.-19. mars 2026 varpar ljósi á viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar. Niðurstöðurnar sýna að almenningur þekkir hugtakið dánaraðstoð nokkuð vel og skilur það að mestu leyti rétt. Stuðningur við dánaraðstoð er víðtækur og hefur haldist stöðugur yfir tíma, þótt greina megi ákveðinn mun eftir aldri og stjórnmálaskoðunum. Könnunin sýnir að dánaraðstoð er bæði siðferðilegt og persónulegt málefni. Afstaða fólks mótast af ólíkum gildum, reynslu og hugmyndum um sjálfræði, lífslok og mannlega reisn. Á bak við tölurnar eru raunverulegar spurningar um þjáningu og hvernig samfélag mætir fólki þegar lífið er orðið því óbærilega erfitt. Víðtækur og stöðugur stuðningur Afstaða almennings til dánaraðstoðar er almennt jákvæð. Þegar spurt var: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) því að einstaklingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt (dánaraðstoð) ef hann er haldinn sjúkdómi eða ástandi sem hann upplifir óbærilegt og metið hefur verið ólæknandi? kom fram að 73,3% eru mjög eða fremur hlynnt. Þá eru 17,6% hlutlaus og aðeins 9% andvíg. Niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri mælingar, en stuðningur mældist 77,7% árið 2019 og 76,2% árið 2022. Þetta bendir því til þess að jákvæð afstaða til dánaraðstoðar sé ekki tímabundin sveifla heldur stöðugt viðhorf meðal almennings. Þegar spurt var hvort svarendur myndu sjálfir vilja geta fengið dánaraðstoð svöruðu 84,8% játandi, samanborið við 82,2% árið 2022. Það bendir til þess að margir sjái dánaraðstoð ekki fyrst og fremst sem fræðilegt álitamál, heldur sem rétt sem gæti skipt máli fyrir þau sjálf við erfiðar aðstæður í lok lífs. Aðeins 20% svarenda segjast hafa hugleitt dánaraðstoð í tengslum við eigin framtíð, til dæmis vegna sjúkdóms, vitrænnar skerðingar eða lífsloka. Þekking og skilningur á hugtakinu Þekking almennings á hugtakinu dánaraðstoð er tiltölulega góð. Rúmlega 65% segjast þekkja það vel, tæp 26% hvorki vel né illa og um 9% fremur eða mjög illa. Meirihluti svarenda, eða tæp 72%, velur þá skilgreiningu að dánaraðstoð sé læknisaðstoð við að deyja með gjöf banvæns skammts lyfja að beiðni sjúklings. Það bendir til þess að hugtakanotkun sé að skýrast í samfélaginu. Á sama tíma tengja 16,8% hana við lífslokameðferð og 8,4% við líknarmeðferð. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að byggja umræðuna á skýrum skilgreiningum og traustum upplýsingum. Aldur skiptir máli, en ræður ekki úrslitum Stuðningur við dánaraðstoð er almennur í öllum aldurshópum. Mestur er hann meðal fólks á aldrinum 30-49 ára, en elsti hópurinn sýnir nokkuð meiri varfærni. Þekking á hugtakinu tengist einnig aldri. Í hópnum 30-39 ára segjast 73,4% þekkja hugtakið vel. Í hópnum 40-49 ára velja flestir rétta skilgreiningu, eða 78,2%, en í hópnum 60 ára og eldri er hlutfallið 63,7%. Þessar niðurstöður benda til þess að þekking og afstaða fari að einhverju leyti saman. Því betur sem fólk skilur hvað dánaraðstoð felur í sér, þeim mun líklegra virðist það til að taka afstöðu með henni. Þverpólitískur stuðningur með blæbrigðum Stuðningur við dánaraðstoð er þverpólitískur, þótt greina megi ákveðinn áherslumun milli kjósendahópa. Mestur mælist stuðningurinn meðal kjósenda Sósíalistaflokksins, eða 81,5%, Viðreisnar, eða 80,8%, og Samfylkingarinnar, eða 78,9%. Minnstur er hann meðal kjósenda Framsóknarflokksins, þar sem hann mælist 55,3%. Í meðfylgjandi stöplariti má sjá stuðning almennings við dánaraðstoð eftir fylgi flokka. Kjósendur Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata sýna almennt meiri þekkingu og skýrari skilning á hugtakinu. Skilningur er þó breytilegri meðal kjósenda annarra flokka. Til dæmis eru kjósendur Flokks fólksins síður líklegir til að skilgreina dánaraðstoð eingöngu sem læknisaðstoð við að deyja, eða 51,9%, og tengja hana oftar við lífslokameðferð, 32,8%, og líknarmeðferð, 15,3%. Þörf fyrir upplýsta og málefnalega umræðu Í heild sýna niðurstöðurnar að íslenskt samfélag er tilbúið til að ræða dánaraðstoð á upplýstan og yfirvegaðan hátt. Þekking á hugtakinu er orðin nokkuð almenn og stuðningur áfram víðtækur. Fyrir stefnumótun felst í þessu mikilvæg ábending. Tryggja þarf skýra hugtakanotkun, gott aðgengi að upplýsingum og rými fyrir opna og málefnalega umræðu um lífslok, sjálfræði og mannlega reisn. Nú er komið að Alþingi að taka samtalið áfram. Vilji almennings liggur skýrt fyrir, en honum þarf að mæta með ábyrgri umræðu, vandaðri stefnumótun og löggjöf sem byggir á mannúð, öryggi og virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti fólks við lífslok. Það er verkefnið sem Lífsvirðing mun áfram beita sér fyrir. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar