Lítið þorp í Gana hélt skrúðgöngu fyrir Aston Villa Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. maí 2026 22:01 Aston Villa hélt flotta skrúðgöngu í Birmingham en stemningin var líklega mest í litlu þorpi í Gana. Aston Villa/Aston Villa FC via Getty Images Á sama tíma og lið Aston Villa fagnaði Evrópudeildartitlinum með skrúðgöngu í Birmingham var skrúðganga haldin í litlu þorpi í Gana af sama tilefni.
Aston Villa batt enda á þrjátíu ára titlaþurrð með 3-0 sigri gegn Freiburg í gærkvöldi. Leikmenn liðsins sneru aftur heim til Englands frá Tyrklandi í dag og fögnuðu titlinum með glæsilegri skrúðgöngu í gegnum Birmingham. Í um fimm þúsund kílómetra fjarlægð, í ganverska þorpinu Juaben, fór einnig fram skrúðganga með um þrjátíu mótorhjólum og lítilli rútu í eftirdragi. Þorpið er heimili rúmlega þúsund Aston Villa stuðningsmanna, sem kalla sig „Ghana Lions“. We are champions 🏆. UP THE VILLA pic.twitter.com/o359QRTHfa— Ghana Lions AVFC (@AvfcGhana) May 20, 2026 „Gærdagurinn var einn besti dagurinn í okkar lífi, þvílíkur tími til að vera stuðningsmaður Aston Villa,“ sagði formaður stuðningsmannaklúbbsins, Owusu Boakye, við BBC. Þorpið tók ástfóstri við Aston Villa þökk sé afa hans, Daniel Boakye, sem dvaldi sem ungur maður hjá fjölskyldu í Birmingham. Ganverjarnir sýna stuðning í verki. ghana lions avfc „Þegar við vorum börn sagði hann okkur oft sögur og söguna um Aston Villa. Hann talaði um leikmann sem Guð,“ sagði Owusu en guðinn sem um ræðir er Paul McGrath, leikmaður Aston Villa frá 1989-96. Paul McGrath var hluti af síðasta liði Aston Villa sem vann bikar, deildabikarinn 1996. vísir/getty Síðustu þrjátíu ár hefur Aston Villa ekki unnið bikar og því hefur heil kynslóð alist upp í ganverska þorpinu óþekkt sigurtilfinningunni, fyrr en nú. „Þetta er stórkostlegt. Þvílíkur tími sem við lifum. Allt samfélagið hefur komið sér saman og styður Aston Villa. Þegar Aston Villa vann síðast bikar voru flestir hér ekki fæddir. Við biðum eftir því að sjá liðið skrá sig á spjöld sögunnar á ný.“
Sambandsdeild Evrópu Aston Villa FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira