Stórar breytingar á leið Íslands á stórmót Sindri Sverrisson skrifar 21. maí 2026 14:17 Síðasti HM-draumur Íslands varð að engu með tapi gegn Úkraínu síðasta haust. Getty/Ernest Kolodziej UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hefur ákveðið að gera umfangsmiklar breytingar á undankeppnum stórmóta karla og Þjóðadeildinni. Í undankeppni HM 2030 verður þjóðunum skipt í efri og neðri deild, og á Ísland á hættu að enda í neðri deildinni.
Breytingarnar eru meðal annars hugsaðar til að koma í veg fyrir ójafna leiki stórþjóða Evrópuboltans við smáþjóðir á borð við San Marínó og Andorra. Breytingarnar eru sömuleiðis í anda hinnar breyttu Meistaradeildar Evrópu, þar sem ekki verður skipt upp í riðla í sams konar riðlakeppni og áður fyrir stórmót heldur dregið um hvaða liðum hver þjóð mætir. Nýju reglurnar, sem sjá má myndrænt hér, taka gildi eftir Evrópumótið sumarið 2028. Undankeppnin fyrir það mót verður því sú síðasta í bili þar sem liðum verður skipt í aðskilda undanriðla. Færri deildir í nýrri Þjóðadeild Byrjað verður á að breyta Þjóðadeildinni. Hafa má í huga að Ísland er sem stendur í C-deild Þjóðadeildarinnar og því 32 þjóðir fyrir ofan strákana okkar, í A- og B-deild, á leiktíðinni sem hefst í haust. Breytingar á Þjóðadeildinni taka gildi fyrir tímabilið 2028-29. Í stað fjögurra deilda þá verða þrjár deildir, hver með 18 þjóðum (eða þá 19 í C-deild ef 55 þjóðir verða með). Þjóðadeildin mun skiptast í A-, B- og C-deild, með 18 liðum í hverri deild. Innan hverrar deildar verður svo skipt í þrjá riðla. Neðstu lið í A- og B-deildum falla, efstu lið í B- og D-deild fara upp, og einnig eru umspil um að komast upp eða forðast fall. Efstu átta liðin í A-deild komast í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar og geta orðið meistarar.UEFA Hverri deild verður skipt upp í þrjá sex liða riðla og mun hvert lið spila sex leiki (á heima- OG útivelli við lið úr eigin styrkleikaflokki en á heima- EÐA útivelli við lið úr öðrum styrkleikaflokkum). Lið geta svo líkt og áður komist upp úr sinni deild eða fallið, farið í umspil um að komast upp eða forðast fall, eða komist í 8-liða úrslit bestu liðanna í A-deild sem enda svo með því að eitt lið verður Þjóðadeildarmeistari. Spilar Ísland í 1. eða 2. deild fyrir HM? Undankeppnin fyrir HM 2030 verður svo með gjörbreyttu sniði. Liðin 36 úr A- og B-deildum Þjóðadeildarinnar munu spila þar í 1. deild en hin 18 (eða 19) liðin spila í 2. deild. Í 1. deildinni verður svo liðunum skipt í þrjá 12 liða styrkleikaflokka áður en dregið verður í þrjá 12 liða riðla, með fjórum liðum úr hverjum styrkleikaflokki. Hvert lið mun svo fá sína sex leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki. Eftir Þjóðadeildina 2028-29 færast liðin í undankeppni HM sem skiptist í 1. og 2. deild. Alls verða 36 lið í 3 riðlum í 1. deild en 18 lið í 3 riðlum í 2. deild.UEFA Liðunum í 2. deild, sem Ísland gæti þurft að spila í ef liðið vinnur sig ekki upp úr C-deild í haust, verður svo skipt í þrjá sex liða riðla. Ljóst er að sigurlið riðlanna þriggja í 1. deild komast beint á HM en fleiri lið úr 1. deild og einhver úr 2. deild munu fara í umspil um önnur HM-sæti sem Evrópa fær. Nákvæm útfærsla mun liggja fyrir síðar.
Landslið karla í fótbolta HM 2030 í fótbolta EM 2032 í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira