Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. maí 2026 18:55 Vilhjálmur Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segist hafa sent erindi til héraðssaksóknara þar sem hann biður um rannsókn á framgöngu lögreglunnar gagnvart skjólstæðingi sínum. Vísir/Vilhelm og aðsend Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manninum í fyrradag þar sem hann var í kirkjugarðinum í Keflavík. Maðurinn hafði hellt yfir sig íkveikjuvökva og beitti lögreglan rafvarnarvopni. Sjónarvottur lýsti því í kvöldfréttum okkar í gær hvernig kviknað hefði í manninum. Hann var fluttur á sjúkrahús með brunasár víða. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og lögmaður mannsins segir lögreglu hafa gengið of hart fram. „Lögreglunni var kunnugt um að skjólstæðingur minn í þessu máli hefði hellt yfir sig eldfimum vökva og það liggur í hlutarins eðli að það er ekki hægt að beita rafbyssum við slíkar aðstæður, það er bara algjörlega óforsvaranlegt. Þannig að það er fyrir neðan allar hellur að lögreglan hafi gert það í þessu tilviki. Lögregla á ekki að grípa til harkalegri aðgerða en þörf er á hverju sinni. Þannig að ég tel algjörlega augljóst miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir núna að lögreglan fór langt fram úr öllu meðalhófi með þessum aðgerðum og stórskaðaði umbjóðanda minn.“ Hann segir líðan mannsins slæma. „Hann var fluttur með sjúkraflugi til Noregs í gær og hann er enn í aðgerð á sjúkrahúsi í Noregi í dag, þannig að staðan er grafalvarleg. Hann er með bruna á um fimmtíu prósent líkamans og við einfaldlega bara krossum fingur og vonum það besta.“ Óljóst er hvað olli eldinum, hvort það hafi verið rafvarnarvopnið eða hann hafi sjálfur kveikt eldinn með kveikjara. „Það liggur ekki ljóst fyrir, hins vegar liggur ljóst fyrir að þeir beittu rafbyssunni. Það var skotið skotum úr rafbyssu á vettvangi og svo fóru þeir strax til vitnis sem var á vettvangi og létu vitnið eyða myndbandi sem vitnið tók af atvikinu. Það er ekki til þess fallið að vekja traust. Þar að auki er það auðvitað algjörlega ólögmæt framkvæmd af hálfu lögreglunnar,“ segir Vilhjálmur. Hann segir lögreglu með þessu hafa bæði brotið gegn tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. „Auðvitað er með því verið að eyða sönnunargögnum sem eru til af hugsanlegri refsiverðri háttsemi og lögreglunni á nú að vera það ljóst að það er ólögmætt. Þá er það rangt sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur haldið fram að umbjóðandi minn hafi verið án klæða í umræddu tilviki. Svo var bara alls ekki, þannig að sú málamyndaástæða sem lögreglan hefur gefið að þessi eyðing á myndbandinu hafi verið í þágu umbjóðanda míns, hún er einfaldlega röng og stenst ekki skoðun. Því hann var í nærfötum.“ Sjá einnig: Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Þá segir hann lögreglu ekki hafa stafað nein hætta af manninum og það ekki réttlæta aðgerðirnar. „Við höfum nú þegar stigið næstu skref. Ég er búinn að senda erindi á héraðssaksóknara og gera kröfu um sakamálarannsókn á grundvelli þess að hér hafi hugsanlega verið brotið gegn almennum hegningarlögum í þessu tilviki og lögreglulögum líka, þannig að boltinn er í raun og veru í höndum héraðssaksóknara, en ég trúi ekki öðru en að það verði hafin rannsókn á atvikinu.“
Rafbyssur Lögreglan Reykjanesbær Lögreglumál Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira