Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. maí 2026 12:43 Að vanda fór vel á með Xi og Pútín en samband þeirra er talið nokkuð náið. Getty/Anadolu Xi Jinping, forseti Kína, segir hættu á því að alþjóðasamfélagið fari aftur að lúta „frumskógarlögmálinu“. Samband Kínverja og Rússa sé hins vegar til þess gert að stuðla að stöðugleika. Vladimir Pútín Rússlandsforseti er staddur í opinberri heimsókn í Kína.
Leiðtogarnir eru sagðir hafa átt langa fundi með sendifulltrúum beggja ríkja og þá undirrituðu þeir ýmsa samninga um samstarf á sviði viðskipta, tækni og vísinda. Þá eru þeir sagðir hafa undirritað framlengingu á samkomulagi ríkjanna um „nágrannaþel og vinsamlega samvinnu“, sem var fyrst undirritað fyrir um 25 árum síðan. Þegar pappírarnir höfðu verið undirritaðir fór Xi fögrum orðum um samstarf Kína og Rússlands og kallaði eftir því að bæði ríki tækju sér stöðu gagnvart „einhliða yfirgangi“ á alþjóðasviðinu. Þá ítrekaði hann nauðsyn vopnahlés í Mið-Austurlöndum. Pútín sagði samskipti ríkjanna aldrei hafa verið jafn góð, hét því að sjá Kínverjum fyrir orku og bauð Xi að heimsækja Rússland á næsta ári. Heimsókn Pútíns kemur fast á hæla heimsóknar Trumps til Kína. Þar var meðal annars gengið til samninga um kaup Kínverja á 200 Boing-þotum og framlengingu á viðskiptasamningi sem ríkin gerðu í fyrra. Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, segir ekki útilokað að Pútín og Trump muni funda í nóvember, þegar báðir verða viðstaddir ráðstefnu Efnahagssamstarfs Asíu- og Kyrrahafsríkjanna (Apec) í Kína.
Kína Rússland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Vladimír Pútín Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Sjá meira