Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir skrifar 20. maí 2026 10:31 Málflutningur ríkisstjórnarinnar síðustu mánuði hefur einkennst af fullyrðingum um að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn „í gildi“. Mikilvæg og stefnumarkandi skjöl Evrópusambandsins vekja þó athygli fyrir allt annað: þar birtist Ísland hvergi sem umsóknarríki. Í niðurstöðum ráðs Evrópusambandsins frá 25. júní 2024 um samskipti ESB við ríki Evrópu utan sambandsins („Council conclusions on the EU’s relations with Western European non-EU countries“) er Ísland ítrekað nefnt sem EES-ríki, Schengen-ríki, samstarfsaðili á norðurslóðum og strandríki í sjávarútvegi. Hins vegar er Ísland hvergi kynnt sem umsóknarríki eða hluti af stækkunarferli sambandsins. Þetta er athyglisvert vegna þess að sama skjal fjallar ítarlega um stækkunarstefnu Evrópusambandsins og framtíð stækkunarferlis Evrópusambandsins. Þar eru umsóknarríki og aðildarferli rædd sérstaklega. Ísland er hins vegar hvergi að finna þar á meðal heldur alfarið fjallað um það í hlutverki utanaðkomandi samstarfsríkis. Ísland birtist ekki sem umsóknarríki árið 2024 Ef aðildarumsókn Íslands væri í raun talin lifandi með skýrum og ótvíræðum hætti mætti ætla að það sæist einhvers staðar í stefnumarkandi skjölum sambandsins sjálfs eins og þessu. Þess í stað virðist Ísland vera meðhöndlað sem ytra samstarfsríki sem tengist Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn, Schengen-samstarfið og fjölmörg sértæk samstarfssvið. Á sama tíma hafa íslensk stjórnvöld, einstakir fulltrúar Evrópusambandsins og nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar byggt á þeirri forsendu að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn „í gildi“. Í nefndarálitinu er jafnvel talað um að Ísland þurfi að verða „aftur meðhöndlað sem umsóknarríki“. Það orðalag er athyglisvert í ljósi þess að Ísland hefur um árabil hvorki birst á opinberum listum Evrópusambandsins yfir umsóknarríki né verið flokkað með þeim ríkjum í stefnumarkandi skjölum sambandsins. Réttindi og skyldur fylgjast að Í þessu sama skjali segir orðrétt að ríki utan Evrópusambandsins sem taki ekki á sig sömu skuldbindingar og aðildarríkin geti ekki notið sömu réttinda og ávinnings og þau („Non-members of the Union that do not live up to the same obligations as members cannot have the same rights and enjoy the same benefits as members.“). Þarna birtist mjög skýr grunnforsenda í hugsun Evrópusambandsins: réttindi og aðgangur fylgja sameiginlegum skuldbindingum og sameiginlegu regluverki. Þetta er hugsun um einsleitni, sameiginlegar leikreglur og jafnvægi milli réttinda og skyldna. Það er sérstaklega áhugavert í ljósi íslenskrar umræðu þar sem reglulega er rætt um sérlausnir, undanþágur og möguleikann á því að vera „nánast inni“ án þess að gangast undir sömu skuldbindingar og aðildarríki sambandsins. Ef umsókn Íslands er enn „í gildi“ í þeim skilningi sem haldið hefur verið fram í íslenskri umræðu, hvers vegna birtist Ísland þá ekki sem umsóknarríki í nýjum stefnumarkandi skjölum Evrópusambandsins sjálfs? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar