Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar 12. júní 2026 14:02 Það hefur skapast mikil umræða um ný lög um brottfararstöð, eðlilega. Fólk hefur áhyggjur og það eru miklar tilfinningar sem fylgja viðkvæmum málum af þessu tagi. Að því sögðu er mikilvægt að við tölum um lög um brottfararstöð eins og þau eru. Sumstaðar finnst mér fólk hafa farið fram úr sér og misst augun af boltanum. Vistun í brottfararstöð er síðasta úrræði og ekki til langs tíma Af umræðunni mætti oft halda að nú eigi að vista alla umsækjendur um alþjóðlega vernd í lokaðri búsetu og það verði gert til langs tíma - hvorugt er rétt. Einungis kemur til vistunar þegar einstaklingur hefur fengið endanlega synjun, sýnir ekki vilja til samstarfs við stjórnvöld, getur farið til öruggs ríkis og ber að fara af landi brott. Öll þessi skilyrði verða að vera uppfyllt. Auk þess er vistunin að undangengnum vægari úrræðum eins og rafrænu eftirliti, tilkynningarskyldu og afhendingu vegabréfs. Þetta er mikilvægt atriði sem hefur aðeins týnst í umræðu um málið vegna þess að ekki er fjallað um þessi úrræði í sjálfum lögunum um brottfararstöð – heldur er fjallað um þau í útlendingalögum (sjá hér gr. 105) Það er síðan skýrt í lögunum að fjölskyldur með börn má ekki vista lengur en í 3 daga að jafnaði og 9 daga að hámarki ef röskun verður á flutningi frá landinu. Til dæmis ef flug er fellt niður eða eitthvað slíkt. Almennt er gert ráð fyrir vistun í 3 daga. Brottfararstöð er ekki fangelsi Þetta er afar villandi og röng orðanotkun, við vitum öll hvað fangelsi er. Fangelsi er refsiúrræði þar sem fangar afplána refsidóma fyrir brot á lögum. Ekkert af þessu á við um einstaklinga sem verða vistaðir í brottfararstöð. Þótt brottfararstöð sé vissulega lokað úrræði þar sem fólk er frelsissvipt er þarna grundvallarmunur á. Fólk er frelsissvipt í öðrum tilvikum í samfélaginu án þess að vera í fangelsi — til dæmis í öryggisvistun, erfiðum barnaverndarmálum eða málum barna með fjölþættan vanda. Slík tilvik eru alltaf erfið viðfangs og ákvarðanir af því tagi aldrei teknar af léttúð. Ný lög eru framfaraskref Það er ekki svo að hingað til hafi þessi tilvik ekki komið upp. Þvert á móti hafa þau ítrekað komið upp og kerfið okkar gripið þau mjög illa. Það hefur verið gert með því að vista þá einstaklinga í gæsluvarðhaldi í fangelsum á meðan brottvísunar er beðið — en það hefur nú verið bannað með lögum um brottfararstöð. Þannig hafa börn verið aðskilin frá foreldrum sínum en ný lög koma í veg fyrir að slíkt gerist. Það hefur líka verið þannig að fjölskyldur með börn geta farið í felur þegar brottflutningur er ákveðinn og eru síðan sóttar af lögreglu, oft um miðjar nætur og fluttar frá landinu. Slík óreiða og óvissa er allt annað en mannúðleg. Skýrt og fyrirsjáanlegt kerfi í útlendingamálum er nauðsynlegt svo að unnt sé að gæta að mannúðarsjónarmiðum. Það er nauðsynlegt svo við sem samfélag getum tekið vel á móti þeim fjölmörgu sem sækja hér um dvalarleyfi, fá það og setjast að á Íslandi. Framkvæmdin skiptir öllu máli Fólk getur haft ýmsar skoðanir á því hvernig við sem samfélag tökum á móti hælisleitendum. Orðræða á þann veg að þessi ákvörðun sé tekin af illum hug eða til þess eins að beita útlendinga hörku dæmir sig hins vegar sjálf. Þessi lög eru samþykkt eftir langa og góða þinglega meðferð og að vel ígrundaðri skoðun. Ísland er eina ríkið af 29 í Schengen-samstarfinu sem er ekki nú þegar með brottfararstöð. Af þessum 29 ríkjum eru lönd í ESB og öll Norðurlöndin. Höfum þetta líka í huga þegar því er haldið fram að lagasetningin stangist á við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Öll Schengen-ríki eru aðili að sáttmálanum og þau hafa öll, auk lögmanna Alþingis, komist að þeirri niðurstöðu að brottfararstöð stangist ekki á við barnasáttmálann. Nú skiptir öllu máli hvernig lögin eru framkvæmd og þar ber ég mikið traust til fulltrúa okkar jafnaðarmanna í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég bind vonir við að lögin og framkvæmd þeirra tryggi að kerfið verði eins mannúðlegt og kostur er á og stuðli þannig að breiðri sátt í samfélaginu. Höfundur er forseti Ungs jafnaðarfólks – ungliðahreyfingar Samfylkingar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar