Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. maí 2026 15:25 Grafarvogsbúar skiluðu Grafarvogsbúanum Sigrúnu Ástu Einarsdóttur inn í borgarstjórn að mati Hafsteins Einarssonar stjórnmálafræðings. Aukin kjörsókn umfram meðalaukningu í Grafarvogi og í Úlfarsárdal skilaði Sjálfstæðisflokki níunda manninum inn í borgarstjórn. Þetta segir Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vísi. Kjörsókn jókst um 3,7% í Reykjavík milli borgarstjórnarkosninga 2022 og 2026. En breytingin var afar misjöfn milli hverfa borgarinnar.
Líkt og fram hefur komið voru skoðanakannanir sögulega nákvæmar í aðdraganda þessara sveitarstjórnarkosninga. Stærstu frávikin miðað við kosningaspá Vísis voru þriðju menn Viðreisnar og Vinstrisins en flokkarnir fengu tvo menn hvor en ekki þrjá líkt og spáð var. Í staðinn náði níundi maður Sjálfstæðisflokks kjöri og þriðji maður Miðflokks. Grafarvogsbúar skiptu sköpum „Þegar við rýnum í kjörsókn eftir hverfum borgarinnar, sjáum við að aukningin frá því 2022 er mjög mikil í úthverfum og þá sérstaklega í Grafarvogi, Úlfarsárdal og í Grafarholti,“ segir Hafsteinn. Það gefi augaleið að það hafi haft mikil áhrif á kjörgengi Sjálfstæðisflokksins enda ljóst að flokkurinn sæki þangað mikið fylgi. Þegar litið er til kjörstaða má sjá að kjörsókn jókst mest í Rimaskóla síðan árið 2022 eða um 7,35 prósent. Til samanburðar dróst hún saman um 2,4 prósent í Hagaskóla í vesturbæ Reykjavíkur. Minnst var kjörsókn í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, 40,58 prósent en mest í Fossvogsskóla, 67,17 prósent. Sambærilega aukningu síðan 2022 má sjá á öðrum kjörstöðum í Grafarvogi. Kjörsókn jókst um 5,31 prósent í Foldaskóla og um 6,03 prósent í Borgarskóla. „Við sjáum að kjörsókn minnkar mest eða dregst jafnvel saman í þeim hverfum þar sem fráfarandi meirihluti er sterkastur, eða í Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum. Þessi ójafna kjörsókn eftir borgarhlutum hefur því haft veruleg áhrif á úrslit kosninganna,“ segir Hafsteinn. Hann mun ræða niðurstöður kosninga og rýna í gögnin á hádegisfundi Félags stjórnmálafræðinga sem fer fram í Odda 101 í Háskóla Íslands klukkan 12:00 á morgun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttakona ræddi við Sigrún Ástu Einarsdóttur á kosninganótt þegar útlit var fyrir að hún yrði níundi maður Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, líkt og raungerðist.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Tengdar fréttir „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Umdeildar vegaframkvæmdir við Höfðabakka hafa gríðarleg áhrif á Grafarvogsbúa að sögn íbúa hverfisins. Nýjasta breytingin geri það stórhættulegt að aka um fjölfarin gatnamót. 19. september 2025 23:01 Borgin sé ekki að refsa Grafarvogsbúum Skrifstofustjóri borgaralandsins hjá Reykjavík segir að ákvörðun borgarinnar um að draga úr slætti á túni við Sóleyjarima í Grafarvogi tengist verkefninu Grassláttur í Reykjavík, og hafi ekkert með fyrirhugaða íbúðauppbyggingu eða deilur við Grafarvogsbúa um þéttingaráform að gera. 2. júlí 2025 16:48 Ráðherra friðlýsti Grafarvoginn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Grafarvogs. Vogurinn er friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Friðlýsingin var unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar. 4. mars 2026 14:03 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Sjá meira
„Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Umdeildar vegaframkvæmdir við Höfðabakka hafa gríðarleg áhrif á Grafarvogsbúa að sögn íbúa hverfisins. Nýjasta breytingin geri það stórhættulegt að aka um fjölfarin gatnamót. 19. september 2025 23:01
Borgin sé ekki að refsa Grafarvogsbúum Skrifstofustjóri borgaralandsins hjá Reykjavík segir að ákvörðun borgarinnar um að draga úr slætti á túni við Sóleyjarima í Grafarvogi tengist verkefninu Grassláttur í Reykjavík, og hafi ekkert með fyrirhugaða íbúðauppbyggingu eða deilur við Grafarvogsbúa um þéttingaráform að gera. 2. júlí 2025 16:48
Ráðherra friðlýsti Grafarvoginn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Grafarvogs. Vogurinn er friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Friðlýsingin var unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar. 4. mars 2026 14:03