Lífið

Stuð í kosningavökum flokkanna

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það var mikið stuð í kosningavökum flokkanna eftir að niðurstöður voru kunngjörðar á laugardagskvöld.
Það var mikið stuð í kosningavökum flokkanna eftir að niðurstöður voru kunngjörðar á laugardagskvöld. Vísir/Vilhelm

Stjórnmálaflokkar héldu kosningavökur um land allt á laugardagskvöldið til að fagna niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga. Fréttastofa Sýnar kíkti í fjölmargar kosningavökur á höfuðborgarsvæðinu og var gríðarleg stemming víða.

Sveitarstjórnarkosningar fóru fram laugardaginn síðastliðinn og bárust fyrstu tölur fljótlega upp úr tíu en þær síðustu rétt undir fimm í nótt.

Fréttastofa Sýnar hélt úti öflugu kosningasjónvarpi þar sem Telma Tómasson og Gunnar Sigurðsson rýndu í tölurnar og fréttamenn ferðuðust víða um höfuðborgarsvæðið til að ræða við stjórnmálamenn og aðra viðmælendur.

Hér að neðan má sjá brot af því besta úr kosningavökunum sem ljósmyndararnir Vilhelm Gunnarsson og Viktor Freyr Arnarson tóku um kvöldið og nóttina:

Hildur og Einar kát eftir niðurstöðurnar.Vísir/Vilhelm

Einar Þorsteinsson og Milla Ósk yfirgefa Ráðhúsið.Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir kemur á kosningavöku Sjálfstæðismanna eftir fyrstu tölur með manni sínum Jóni Skaftasyni.Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir fagnar með félögunum.Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir ávarpaði hróðuga Sjálfstæðismenn.Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir með meðframbjóðendum sínum í Sjálfstæðissalnum.Vísir/Vilhelm

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna fagnaði saman.Vísir/Vilhelm

Sigurreifur Tómas Þór.Vísir/Vilhelm

Þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Sigurður Örn Hilmarsson.Vísir/Vilhelm

Sigurður Kári Kristjánsson og Bjarni Guðjónsson.Vísir/Vilhelm

Hjónin Einar og Ragnhildur Alda ánægð með úrslitin.Vísir/Vilhelm

Flottar stelpur á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm

Pétur Marteinsson gekk inn í Austurbæjarbíó með sinni konu, Unni A. Valdimarsdóttur.Vísir/Viktor Freyr

Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir í Austurbæjarbíói.Vísir/Viktor Freyr

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri með systkinunum, Oddi og Nönnu Atlabörnum.Vísir/Viktor Freyr

Sólrún Klara, Jara Birna, Björn Aron, Ólafur Björn og Sigurbergur á kosningavöku Samfylkingarinnar. Vísir/Viktor Freyr

Skúli Helgason og Dóra Björt Guðjónsdóttir á kosningavöku Samfylkingarinnar.Vísir/Viktor Freyr

Elísabet Gísladóttir með tveimur vinkonum á kosningavöku Samfylkingarinnar.Vísir/Viktor Freyr

Parið Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, og Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins.Vísir/Vilhelm

Páll Edwald, frambjóðandi Miðflokksins, með tengdaforeldrum sínum, Hilmari Þór Kristinssyni og Rannveigu Eir Einarsdóttur.Vísir/Vilhelm

Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi ráðherra og Miðflokksmaður, og Nadine Guðrún Yaghi, kosningastýra Miðflokksins í borginni.Vísir/Vilhelm

Frambjóðendur Miðflokksins í Reykjavík, Eva Þorsteinsdóttir og Sóldís Birta Reynisdóttir, með góðri vinkonu.Vísir/Vilhelm

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, með tveimur Miðflokkspæjum.Vísir/Vilhelm

Kjartan Magnússon og Óttar Pepsi-aðdáandi.Vísir/Vilhelm

Ásdís Kristjánsdóttir var hrærð yfir móttökunum.Vísir/Vilhelm

Sjálfstæðismenn tóku vel á móti bæjarstjóranum Ásdísi Kristjánsdóttur.Vísir/Vilhelm

Andri Steinn Hilmarsson og Jón Gunnarsson með Guinness og rautt.Vísir/Vilhelm
ívar Atlason og Kristín í stuðiVísir/Vilhelm
Sjálfstæðiskonur kampakátar í Turninum í Kópavogi.Vísir/Vilhelm

Samfylkingarfólk fagnar oddvitanum, Jónasi Má Torfasyni, á Catalinu.Vísir/Viktor Freyr

Jónas Már Torfason var ánægður með uppskeru Samfylkingarinnar þó Sjálfstæðisflokkur hafi unnið mikinn sigur í Kópavogi.Vísir/Viktor Freyr

Eydís Inga Valsdóttir, sem var í öðru sæti á lista Samfylkingar í Kópavogi, í góðum félagsskap á Catalinu.Vísir/Viktor Freyr

Alma Möller, heilbrigðisráðherra, var ánægð með gott gengi sonarins í Kópavogi.Vísir/Viktor Freyr

Andrea Gestsdóttir, læknir og maki Jónasar Más Torfasonar, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi.Vísir/Viktor

Stuð á Catalinu.Vísir/Viktor Freyr

Heiða Kristín Helgadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir á leið í partý.Vísir/Vilhelm

Laufey Jóhannsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og Sverrir Páll Einarsson á kosningavöku Viðreisnar.Vísir/Viktor Freyr

Viðreisnarliðar voru í stuði.Vísir/Viktor Freyr

Fimm fræknir í stuði.Vísir/Viktor Freyr

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, og Magnea Gná Jóhannsdóttir.Vísir/Viktor Freyr

Græn og kát.Vísir/Viktor Freyr

Söngkonan Klara Einarsdóttir í góðum félagsskap á kosningavöku Framsóknarflokksins.Vísir/Viktor Freyr

Stuð hjá Framsóknarmönnum.Vísir/Viktor Freyr

Glæsilegar píur í partýi Framsóknar.Vísir/Viktor Freyr






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.