Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 10:32 Uros Kojadinovic kominn í gegnum vörn Ungverja í einvígi Serbíu og Ungverjalands um sæti á HM. EPA/Zsolt Czegledi Á meðal þeirra þjóða sem mistókst í gær að komast inn á HM karla í handbolta voru Hollendingar, Austurríkismenn og svo Ungverjar sem svo oft hafa reynst Íslendingum erfiður ljár í þúfu.
Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson dæmdu sannkallaðan spennutrylli í Veszprém í gærkvöld þar sem Ungverjar unnu 31-30 gegn Serbum en töpuðu umspilseinvígi liðanna samtals með eins marks mun, 61-60. Útlit var fyrir að úrslitin myndu ráðast í vítakeppni en Ungverjum mistókst að nýta 27 sekúndna lokasókn sína og féllu því úr leik. Það gerðu líka Hollendingar sem töpuðu samtals 67-60 fyrir Grikkjum, og Austurríkismenn sem töpuðu samtals 56-55 fyrir Pólverjum. Ísland vann Ungverjaland á EM í janúar í spennuleik.EPA/Johan Nilsson Færeyingar komu sér á HM í fyrsta sinn með því að slá út Bosníumenn og vinna einvígið 57-50 samanlagt, Slóvenía vann Svartfjallaland samtals 60-57 og Ítalir slógu út Svisslendinga með 67-63 sigri í þeirra einvígi. Alls unnu tíu Evrópuþjóðir sig inn á HM í gegnum umspil um helgina en áður höfðu sex Evrópuþjóðir, þar á meðal Íslendingar, tryggt sig inn á mótið með árangri á EM í janúar eða sem gestgjafar (Þýskaland) eða ríkjandi heimsmeistarar (Danmörk). Sterk rök Ungverja fyrir boðsæti Nú hafa 30 af 32 sætum á HM verið fyllt en það er að venju í höndum IHF, alþjóða handknattleikssambandsins, að velja síðustu tvær þjóðirnar inn á mótið. Síðast urðu Bandaríkin og Sviss fyrir valinu. 𝑃𝑖𝑐𝑘 𝑢𝑝 𝑡ℎ𝑒 𝑝ℎ𝑜𝑛𝑒, 𝑖𝑡’𝑠 𝑡ℎ𝑒 𝑊𝑜𝑟𝑙𝑑 𝐶ℎ𝑎𝑚𝑝𝑖𝑜𝑛𝑠ℎ𝑖𝑝 𝑐𝑎𝑙𝑙𝑖𝑛𝑔 😎🤙30 of 32 spots for the 2027 IHF Men's World Championship are locked in.#Germany2027 pic.twitter.com/LSujmluF2D— International Handball Federation (@ihfhandball) May 18, 2026 Ungverjar gera sér vonir um að fá annað boðsætanna (e. wild card) sem í boði eru og það eykur líkur þeirra að Bandaríkin skuli þegar hafa unnið sig inn á mótið. Bandaríkjamenn verða gestgjafar næstu Ólympíuleika og hefðu því vafalítið fengið boð á HM hefðu þeir þurft þess. Ungverjar gera ansi sterkt tilkall til þess að fá boðsæti því þeir hafa endað í hópi átta efstu þjóða á HM í síðustu þrjú skipti. Aðeins þrjár aðrar þjóðir geta státað sig af því. Ungverjar voru líka bara einu marki frá því að komast á HM, eins og reyndar Austurríkismenn. Þá hafa Ungverjar aldrei fengið boðsæti áður og þeir verða líka gestgjafar HM kvenna á næsta ári sem ætti að hvetja IHF til að halda sambandinu góðu við þá. Það gæti því enn vel farið svo að Ísland mæti Ungverjalandi á HM í janúar á næsta ári en þá er vert að hafa í huga að strákarnir okkar lækkuðu rostann í „Ungverjagrýlunni“ með 24-23 sigri á EM í janúar síðastliðnum. Þar endaði Ísland í 4. sæti en Ungverjaland í því tíunda. Dregið verður í riðla fyrir HM þann 10. júní.
HM karla í handbolta 2027 Handbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira