Oddvitaáskorunin: „Alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 14:47 Við Ingibjörg Ísaksen, fyrirmynd mín í pólitík á góðri stundu á Hilton Reykjavík Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Monika Margrét Stefánsdóttir er oddviti Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð. Monika Margrét Stefánsdóttir heiti ég og er oddviti Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð. Ég er sveitarstjórnarfulltrúi ásamt því að sitja í Byggðaráði og Fjölskylduráði. Ég er eigandi Keramikloftsins sem er staðsett á Árskógssandi, er gift Gunnari Árna Jónssyni og eigum við fjögur börn og eitt barnabarn. Ýmis handverk eru mín áhugamál ásamt því að brasa með fjölskyldunni hvort sem er heima eða á ferðalögum. Ég fylgist vel með málefnum líðandi stundar og ef ég vil virkilega njóta kem ég mér vel fyrir með prjónana mína og Alþingi í eyrunum. Ég hef komið að sveitarstjórnarmálum síðastlðin 8 ár, setið í ráðum og nefndum ásamt því að vera formaður Framsóknarfélagsins í Dalvíkurbyggð síðastliðin 2 ár. Á þessu kjörtímabili vil ég leggja áherslu á að ný slökkvistöð rísi sem allra fyrst, passa upp á verkefnið Gott að eldast, huga vel að málefnum barna í sveitarfélaginu og halda áfram vinnunni að heilbrigðum rekstri sveitarfélagsins. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ég myndi sennilega flytja í Skagafjörðinn.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Ég er næstum alæta á bækur en ætli það séu ekki aðallega bækur frá gamla tímanum, bækurnar hennar Guðrúnar frá Lundi eru í miklu uppáhaldi.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég myndi byrja á að skoða öll ólögbundin verkefni hjá sveitarfélaginu og skoða hvort mætti minnka þar áður en ég færi í að skoða flatan niðurskurð svo ekkert eitt verkefni frekar en annað fengi að finna fyrir því.“ Ég með loðboltunum heima í kósý og Alþingi í eyrunum Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ég myndi vilja efla tómstundir fyrir öll börn, líka þau sem finna sig illa með fjöldanum en einnig sjálfboðaliðastörf eins og Björgunarsveitina, þar eru unnin þrekvirki mörgum sinnum yfir árið.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Mundi ég eftir að læsa? – Dagur í lífi konu.“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja, en skilaboð eru meira notuð svo ég er að komast þangað.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Þær eru sennilega þónokkrar þó ég muni ekki eftir neinni sérstakri í augnablikinu.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Stundvísi, alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku!“ Amma og Frank Halldór við Goðafoss síðasliðið sumar Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Láta skoða aftur hvort sveitarfélagið ætti að virkja í Brimnesá á Dalvík.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Hvernig ég á að tengja fja… þráðlausan míkrafón við símann minn fyrir myndbönd sem framboðið er að taka.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég get unnið með flest öllum svo hér er allt gal opið.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Ég er góð í að gera mistök en líka góð í að lagfæra þau. Mistök eru gildishlaðið orð en eitt var þegar ég ætlaði að búa til mót í vinnunni og stóð í 3ja lítra polli af vatnsblönduðu gipsi því ég gleymdi að herða einn vinkil – það var ekki endilega svo góð skemmtun.“ Ég og maðurinn minn á besta staðnum okkar, Keramikloftinu Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Bjórböðin á Árskógssandi (bíð eftir að þau opni aftur) og fjöruböðin á Hauganesi.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Er alltaf svo mikið á hlaupum því ég er alltaf sein svo Hleðsla hefur oftar en ekki orðið fyrir valinu þessa dagana.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Of lítil eftirfylgni af verkefnum sem búið er að ákveða að fara í.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Að ná að halda skynsemi í rekstri sveitarfélagsins án þess að það bitni á grunnþjónustu sem við þurfum að veita þrátt fyrir þá miklu uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað á ýmsum sviðum og má þar helst nefna byggingu á nýrri slökkvistöð.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Hætt’essu væli með Ljótu Hálfvitunum.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Margt gott hefur verið gert á síðustu árum en ætli ég verði ekki að nefna skipulagsmálin. Of mikið af lóðum hafa verið skipulagðar á meðan að iðnaðar og hafnarsvæði hafa verið látin bíða. Hefði viljað sjá þetta haldast meira í hendur.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Monsa, ömmurnar mínar og sumt af mínu allra nánasta hefur notað þetta í gegnum árin og amma notar þetta oft enn.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Að framtíð Gamla skóla verði ákveðin í samráði við íbúa sveitarfélagsins.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Dalvíkurbyggð Framsóknarflokkurinn Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira