Körfubolti

Kane sleppur með sekt og spilar á morgun

Ágúst Orri Arnarson skrifar
DeAndre Kane verður með Grindvíkingum á morgun.
DeAndre Kane verður með Grindvíkingum á morgun. vísir

DeAndre Kane var ekki dæmdur í leikbann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ fyrir framkomu sína eftir leik Grindavíkur og Tindastóls í Síkinu á þriðjudag. Hann fær 80.000 króna sekt.

Þetta staðfestir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í samtali við Vísi. 

Niðurstaða aga- og úrskurðanefndar hefur nú einnig verið birt á heimasíðu KKÍ og hana má lesa í heild sinni neðst í fréttinni. 

Grindvíkingum hefur verið tilkynnt um niðurstöðu málsins, sekt frekar en leikbann. Þeir verða fullmannaðir í leik liðanna á morgun.

Grindavík er 2-0 yfir í einvíginu og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á morgun.

Nánar má lesa um ástæður þess að Kane var kærður hér fyrir neðan en hegðun hans eftir síðasta leik þótti óviðunandi.

Frá aga- og úrskurðarnefnd KKÍ 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 59/2025-2026

Með vísan til ákvæðis c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, sbr. f-lið sömu greinar, skal leikmaður Grindavíkur númer 7, Deandre Kane, sæta sekt að fjárhæð 80.000 kr. vegna háttsemi sinnar að loknum leik Tindastóls og Grindavíkur sem fram fór þann 12. maí 2026.

Ábending:

Nefndinni barst ábending um háttsemi leikmanns nr. 7, DeAndre Kane, að loknum leik Tindastóls og Grindavíkur þann 12. maí 2026. Ábendingunni er vísað frá nefndinni þar sem kæra barst ekki eftir réttum kæruleiðum auk þess sem framlögð gögn voru ófullnægjandi.

Ábending:

Nefndinni barst ábending um háttsemi forystumanns Tindastóls að loknum leik Tindastóls og Grindavíkur þann 12. maí 2026. Ábendingunni er vísað frá nefndinni þar sem kæran barst ekki eftir réttum kæruleiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×