Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 17:14 Ingvar Jónsson hefur varið mark Víkinga síðan hann kom heim úr atvinnumennsku árið 2020. Ingvar Jónsson, markvörður Íslandsmeistara Víkings, hefur greinst með illkynja krabbamein og er á leið í lyfjameðferð.
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir um þetta á miðlum félagsins. Ingvar hefur verið utan hóps hjá Víkingi í síðustu tveimur leikjum gegn HK í bikar og Þór Akureyri í deildinni. „Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari.” Ingvar hefur verið aðalmarkmaður Víkings síðustu ár, í gegnum bestu tíma í sögu félagsins. Hann kom til Víkings frá danska liðinu Viborg árið 2020, varð Íslandsmeistari árin 2021, 2023 og 2025, auk þess að verða bikarmeistari þrjú ár í röð 2021 til 2023. Að ógleymdum árangri Víkingsliðsins sem náði í umspil Sambandsdeildarinnar árið 2025. Af mörgun eftirminnilegum stundum Ingvars í Víkingstreyjunni var vítavarsla hans gegn KR árið 2021 líklega sú stærsta. Ingvar varði þar víti frá Kjartani Henry Finnbogasyni, og svo gott sem tryggði Víkingi Íslandsmeistaratitilinn. Ingvar á að baki meira en tvö hundruð leiki fyrir Víking og mikilvægi hans í meistaraliðum síðustu ára verður seint ofmetið. Ingvar á einnig að baki átta A-landsleiki fyrir hönd Íslands. Þá varð Ingvar einnig Íslandsmeistari með liði Stjörnunnar árið 2014 áður en hann söðlaði um í atvinnumennsku til Noregs og Danmerkur. Sveitungur hans úr Njarðvík, Aron Snær Friðriksson, hefur staðið vaktina í síðustu tveimur leikjum í fjarveru Ingvars. Með Ugga Jóhann Auðunsson á varamannabekknum. Fyrr í vetur lagði Pálmi Rafn Arinbjörnsson, varamarkmaður Víkings á síðasta tímabili, skóna á hilluna. Fréttin hefur verið uppfærð...
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Krabbamein Lyf Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira