Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. maí 2026 11:43 Rúmenski maðurinn er 33 ára og var handtekinn í heimalandinu. vísir Rúmenski maðurinn sem er grunaður um að hafa svikið 160 milljónir úr Arion banka hefur verið búsettur hér á landi í þó nokkur ár. Hann keypti sér bíl fyrir illa fengið fé og flúði land með Norrænu eftir svikin en var loks handtekinn í heimalandi sínu.
33 ára rúmenskur karlmaður var handtekinn í heimalandi sínu á miðvikudag af lögreglunni í Búkarest grunaður um að hafa nýtt sér veikleika í kerfi Arion banka í lok apríl til að millifæra á sig 160 milljónir króna með ólöglegum hætti. Rúmenski tölvuþrjóturinn hefur verið úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald í Búkarest en hann verður framseldur hingað til lands. Keyrði þvert yfir Evrópu eftir þjófnaðinn Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi hjá miðlægri deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að maðurinn hafi verslað sér ökutæki hér á landi fyrir illa fengna féð. Hann flúði land með Norrænu nokkrum dögum síðar og ók síðan bílnum frá Danmörku til Rúmeníu þar sem hann var handtekinn. Gott alþjóðlegt samstarf hafi skipt sköpum. „Það kemur í ljós mjög snemma að þetta sé farið að teygja sig út fyrir Ísland og þá verður þetta bara að rosalegu samstarfi. Og í framhaldinu verður þetta samstarf við Europol og Eurojust þar sem við erum íslenska lögreglan með okkar fulltrúa. Þannig að við vitum það að við erum að fara tala strax við Danmörku, við erum að fara tala við Þýskaland og við erum að fara tala við Rúmeníu. Það sem við tökum úr þessu er bara hvað það er magnað að eiga góð alþjóðleg samskipti og hversu mikilvægt það er í dag að lögreglan sé vel undirbúin fyrir svona mál og hafi sína tengiliði. Viðbrögð lögreglunnar í Rúmeníu eru náttúrulega ótrúlega góð.“ Forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka segir að kerfisvilla hjá bankanum hafi gert manninum kleift að endurtaka tiltekna aðgerð oftar en hann átti að geta gert. Tengist fyrra máli með engum hætti Atburðarásinni svipar til máls sem kom upp í nóvember í fyrra þar sem fimm menn voru staðnir að því að hafa haft 390 milljónir af Landsbankanum. Mennirnir uppgötvuðu gallann fyrir tilviljun. Villa hjá Reiknistofu bankanna gerði mönnunum kleift að millifæra af einum reikningi yfir á annan og margfalda þannig upphæðir sínar því upphaflega upphæðin hvarf ekki af upphaflega reikningnum. Með endurteknum millifærslum safnaðist saman meiri og meiri peningur. Agnes segir í samtali við fréttastofu að rúmenski maðurinn hafi ekki notað sömu aðferð og í fyrrgreindu máli. Jafnframt er ekkert sem bendir til þess að hann tengist sakborningum í því máli eða málinu sjálfu. „Nútímaleg bankarán“ Agnes segir það hafa gengið einkar vel að rannsaka málið og endurheimta fjármuni. Strax í upphafi hafi legið fyrir grunur um hver var að verki. Meðal þess sem er rannsakað er hvort maðurinn hafi verið einn að verki eða átt sér einhverja vitorðsmenn. „Við fáum málið til okkar þarna og það kemur seinni part dags og við tökum kvöldið í það að byrja endurheimt lögreglu. Endurheimtin í þessu máli er að við teljum um 95 prósent núna.“ Agnes tekur fram að svik sem þessi séu að aukast og að tölvuþrjótar verði betri í að koma auga á veikleika í kerfum fjármálafyrirtækja. „Ég held að það sé alveg augljóst. Það er líka svolítið þannig að við þurfum að fara að horfa á þessi máll öðrum augum. Í lögfræðilegu tali þá er orðið rán bara notað þegar eitthvað ofbeldi er til staðar eða hótun um ofbeldi. En við höfum ekkert annað orð fyrir það sem er í gangi en að þetta séu bara nútímaleg bankarán. Við verðum auðvitað að fara að horfa á þetta í svolítið alvarlegu samhengi, þessi mál þar sem er verið að stela frá bönkunum. Ég er náttúrulega bara ofsalega ánægð með hvernig lögreglan tókst á við þetta.“ Hún tekur fram að rannsóknin sé mjög langt á veg komin.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Lögreglumál Rúmenía Norræna Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Fleiri fréttir Vill ekki tjá sig um ráðningarviðræður „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjá meira