Sé gríðarlega neikvætt fyrir samfélagið í heild sinni Freyja Þórisdóttir skrifar 10. maí 2026 14:39 Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar, segir ágreining um skólamál hafa orðið til þess að meirihlutinn í Fjarðabyggð sprakk fyrir tveimur árum. Ísland í dag Í nýjasta þætti af Ísland í dag var ferðinni heitið á Austurland. Þar virðist sem samgöngumál, þá sérstaklega áform um Fjarðarheiðargöng, brenni á íbúum. Annars var algengt að fólk nefndi skipulagsmál, þjónustu við aldraða og skólamál aðspurt hvað væri aðkallandi. Í kjölfar breytinga á tilhögun leikskólavistar í Fjarðabyggð hafa konur tekið á sig að minnka starfshlutföll sín.
Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og stjórnmálafræðingur, talaði um stöðu mála á Vopnafirði í nýjasta þætti af Ísland í dag. Þar segir hann einskæran vilja nánast allra í Múlaþingi að Fjarðarheiðargöng verði að veruleika. Forvitnilegt að sjá hvernig fari Hann sagðist eiga von á frekar jöfnum kosningum og nefndi að það yrði forvitnilegt að sjá hvernig rætist úr könnunum þar sem Miðflokkurinn hefur verið að mælast frekar stór. Hann segist ekki endilega eiga von á því að meirihlutinn haldi í Múlaþingi og að allir flokkar geti tapað og allir unnið. „Við höfum séð í könnunum á landsvísu að fyrir þingkosningar sé hann mælast mjög stór í kjördæminu,“ sagði Gunnar. Rætt var við Lárus Bjarnason, oddvita Miðflokksins í Múlaþingi, og sagðist hann hafa nýlega barist fyrst og fremst fyrir göngunum. „Framtíð Múlaþings og bara Austurlands alls byggir á því að við tengjumst hér saman,“ segir Lárus. Þá voru nánast allir viðmælendur í þættinum samsinnis um að samgöngur væru efst á baugi nú í aðdraganda kosninga. Stefán Þór Eysteinsson, oddviti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð, sagðist hafa mætt ýmsum mismunandi áskorunum síðastliðið ár. „Það er búið að vera ótrúlega margt sem hefur gengið á í samfélaginu,“ segir Stefán og nefnir sem dæmi snjóflóð og óveður á Reyðarfirði. Þrátt fyrir stuttan tíma í pólitík hafi hann setið beggja megin borðsins en Samfylkingin hóf kjörtímabilið í meirihluta en er nú í minnihluta. Tekist á um skólamál Gunnar segir frá því í þættinum að „Fjarðabyggð sé skemmtileg“ en að það hafi margt gengið þar á. Þar hafi meirihlutinn sprungið fyrir tveimur árum vegna ágreinings um skólamál en tillögur voru lagðar fram um sameiningu skóla þvert á sjálfstæða byggðakjarna. „Samkvæmt kenningum ætti alveg að fara fram einhvers konar uppgjör gagnvart þessu máli sem sprengdi meirihlutann á miðju kjörtímabili. Síðan voru gerðar breytingar á leikskólum þar sem menn færðu sig svona í átt að þessu módeli að einhverju leyti sem hefur verið í Kópavogi og kennt við Kópavog. Þær eru umdeildar,“ segir Gunnar. Konur minnka við sig í vinnu vegna breytinganna Breytingarnar hafa að sögn Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur, oddvita Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð, tilganginn að manna leikskóla og segir hún þeim tilgangi að hluta til hafa verið náð. Stefán segir þær á móti hafa valdið því að konur hafi dregið úr sínu starfshlutfalli. Kjörtímabilið hefur verið viðburðaríkt á Austurlandi þar sem meirihlutar sprungu og nýir urðu til.Vísir/Vilhelm „Við sjáum það að í þeim fjölskyldum sem hafa minnkað við sig í starfshlutfalli til að borga lægri gjöld þá eru það konurnar sem taka það á sig. Við höfum líka séð það að þegar fólk er að færa vinnutímann sinn þá eru það líka konurnar sem taka það á sig,“ segir hann og nefnir að þau í Samfylkingunni hafi varað við þessum mögulegu afleiðingum. „Það er auðvitað bara gríðarlega neikvætt fyrir samfélagið í heild sinni,“
Ísland í dag Múlaþing Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjarðabyggð Skóla- og menntamál Samgöngumál Skipulagsmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Lækkar eigin laun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira